þriðjudagur, júní 24, 2003

Ferðalög

Ég er á leið í ferðalag, ligga ligga lái. Réttara sagt ferðalög!!! Ég fer á morgun norður (hugsanlega í Ásbyrgi) með Rósu vinkonu sem býr í Boston og er í heimsókn. Planið er að fá Ísland í æð, kíkja á ferðabækur og læra eitthvað á þessu og svo auðvitað hafa bara gaman af lífinu og tilverunni. Ég reikna með að koma til baka á föstudaginn og þá fer ég örugglega beint í Skorradalinn að hjálpa mömmu og pabba í bústaðnum um helgina. SVO gæti alveg eins verið að ég þurfi að skreppa smá til Danmerkur út af vinnunni í fáeina daga í næstu viku. En þessu er ekki lokið, aðal tjaldútilega sumarsins er helgina eftir það - Þórsmörkin með böns af liði. Djí ég er bara frekar busy lady ... en gaman gaman.