Nýtt heimili
Hæ hó dillidó (ekki dildó eins og einhver las þetta hjá mér einhvern tíma).
Fröken Gaggalill er frekar spennt
Ekki á morgun heldur hinn
Fáum við nýja húsið afhent!
Planið er svo að taka fram málningarpenslana
Fá lánaða alls konar hjálparkokka (hjálparmálara)
Mála um næstu helgi
Flytja helgina þar á eftir
Jeij!
gaggalill
um allt og ekkert
mánudagur, mars 13, 2006
miðvikudagur, janúar 11, 2006
Frábærir færeyingar
Kíkið á þetta: http://www.kall.fo/
Þetta er sem sagt mest kúl símafyrirtæki ever!
Talutíðarkort ... mig langar í svoleiðis.
þriðjudagur, janúar 03, 2006
Heilsuspekúleringar
Nýtt ár, ný byrjun ... er það ekki týpískt að hugsa svona?
Ég er í því að skoða svolítið heilsuna mína og ýmsar hugmyndir eru í gangi. Til dæmis langar mig að skella mér í nudd. Líst rosalega vel á að kíkja í nudd á Nordica Spa, langar voðalega að prófa Ayurveda nudd sem á að vera eitthvað indverskt og fínt.
Svo er ég búin að panta tíma hjá næringarþerapista, takk fyrir! Hugmyndin er að fá smá ráð frá henni varðandi skammtastærðir og val á matartegundum. Mér skilst hún Þorbjörg sé alveg rosa klár og hlakka til að kíkja til hennar.
Já svo heyrði ég að það væri til þessi fína verkefnabók frá gaurnum sem fann upp ropeyoga - er að spá í að kíkja aðeins í hana, ókeypis fyrir alla Íslendinga sem langar að skoða sitt innra sjálf! whúhúúú - nú er ég háfleyg ... sjáum til hvort maður skoði þetta.
... og svo held ég mig bara við það sem ég hef verið að gera síðustu ár!
Lífið er yndislegt!
mánudagur, janúar 02, 2006
Springt i luft op!
Gleðilegt ár alle sammen og takk fyrir það gamla.
Ég átti alveg yndislegt gamlárskvöld með góðu fólki, góðum mat, góðu rakettusjóvi og fínum knúsum og kossum.
1. jan var svo bara tekinn rólega, en nú byrjar alvara lífsins. Árið 2006 er víst komið til að vera ... ja alla vega í 12 mánuði hehe.
Ég sé ekki annað en þetta verði gott ár framundan. Ég set íbúðina mína á sölu, flyt í Seljahverfið með krúttinu, geri upp baðherbergi, vonandi ferðast ég eitthvað og það eru væntanlega einhverjir hlutir að gerast í vinnunni.
En ég verð nú bara að segja ykkur að í gær gerðist örugglega óvæntasta uppákoma ársins 2006 ... jedúddamíastur! .... og árið rétt að byrja! Gifting hjá mestu dúllum í heimi !!!!! ...og hef ekki hugmynd um hvort ég má segja nöfn þannig að ég bara held kjafti núna.
Góð byrjun á árinu ... I must say!
föstudagur, desember 30, 2005
Áramótaheit?
Í ár er planið að strengja eitthvað gott og helst óvenjulegt áramótaheit.
Ekki er ætlunin að það heit innihaldi orð eins og megrun, kíló, útlit eða hreyfing, þar sem ég hugsa bara um það einn dag í einu og það hentar mér vel.
Frekar væri gott að strengja heit eins og að:
- hlusta betur á fólk
- vera góð og hjálpleg manneskja
- gefa X kr í góðgerðarstarfsemi
- ferðast með krúttinu mínu
- læra að lesa ársreikninga
- læra svolítið í spænsku
- læra meira jóga
Ætla að hugsa þetta aðeins betur.
Hvaða áramótaheit ætlið þið að strengja í ár? ... ef einhver.
