Andleysi
Get svarið það... er svo andlaus og vitlaus eitthvað í dag, hef einhvern veginn ekkert að segja. Er pissed yfir því hvað sjónvarpið er glatað á fimmtudagskvöldum .. akkúrat þegar ég ætlaði að slaka á yfir tellíinu.
Svo er bara að finna út úr því hvað ég eigi að gera um helgina. Ég er bara búin að ákveða að kíkja smá í verslunarleiðangur og that's IT. Kíki svo kannski á nýfædda barnið og móðurina. Og hver veit - kannski fer ég bara að hjóla smá og svona ef veður leyfir.
Góða helgi alle sammen!
gaggalill
um allt og ekkert
föstudagur, maí 28, 2004
fimmtudagur, maí 27, 2004
Barn fætt!
Hún Lára vinkona mín var að eignast dóttur, 14 merkur og 50 com, dökkhærð og brún eins og mamman... vííí!!!
Til hamingju fólkens!
Pikköpp línur
Ég hef ofursjaldan lent í að fá einhverja "línu" framan í mig. En þó gerðist það einu sinni í Sjallanum á Akureyri eina verslunarmannahelgi.... það var fyndið! En virkaði ekki.
Það var einhver breti sem gerði pikköpplínutest og hér er afraksturinn: Gjössssovel!
Hafið þið lent í svona? Tjáið ykkur nú elskurnar, það gefur mér þá öryggistilfinningu að einhver sé að lesa :D .. ekkert gaman að skrifa fyrir engann!
miðvikudagur, maí 26, 2004
The dating business
JEMINN!
Vinkona mín var svo væn að kynna mig fyrir manni sem hún vinnur með. Ég er búin að ræða við manninn í einhvern tíma með bréfaskriftum í tölvupósti og svo í síma. Þetta reyndist vera hinn ágætasti piltur, svolítið hlédrægur en við eigum fullt sameiginlegt, höfum bæði búið í DK, hann hefur lært svipað nám og ég og svona.... Og svo kom að því að hitta manninn!!!
Hann bauð mér hreinlega að kíkja upp í bústað til sín og fara í gönguferð og svo í pottinn! Mér fannst það alveg svaka kúl hugmynd, en tilhugsunin um að hitta mann í fyrsta sinn fara með honum másandi og blásandi upp á fjall og svo í bikiní á eftir var kannski ekki mín hugmynd um velheppnað deit.
... þannig að ég stakk upp á að hittast kannski bara stutt á kaffihúsi áður en við færum að hoppa í pottinn saman. Hann var til og spurði mig hvort ég væri ekki til í að kíkja á kaffihús í gærkvöldi og ég sló til!
OG .. nú líður mér virkilega illa! Maðurinn var því miður alls ekki eins og ég bjóst við og vinkona mín sem kynnti mig fyrir manninum er hreinlega búin að hafa mig að fífli ... þannig líður mér og get ekki sleppt því.
Hef aldrei heillast af hinum niðursleikta hártoppi, kassagleraugum, andlitskjækjum og frekjuskarði. Bara ekki séns að ég geti heillast af útliti mannsins! ... og fyrir það finnst mér ég vera VOND manneskja. Þetta er mjög sennilega hinn ágætasti piltur allan annan hátt og á bara það besta skilið, en ég bara GET ÞETTA EKKI!
Og nú kemur mesta martröðin ... að þurfa að segja manninum að þetta sé ekki að ganga. I HATE THAT PART! ... einhverjar ráðleggingar þarna úti?
þriðjudagur, maí 25, 2004
Kynlífsfræðsla
Ótrúlegt en satt en það er til fólk sem gleymdist að kenna eitthvað um kynlíf. Sjá nánar hér.
Myndir og kvef
Nú er ég búin að fá myndir af öllu sæta fólkinu á 10 ára endurfundunum. Þær eru að finna hér.
Ég er komin með þetta stórkostlega kvef. Er að taka inn sólhatt og önnur vítamín til að reyna að lagast af þessu. Er einhver með gott húsráð þarna úti?
mánudagur, maí 24, 2004
10 ára Reunion
Það var vægast sagt fyndið að hitta gömlu bekkjarfélagana eftir 10 ár. Sumir voru jafn kokkí, aðrir jafn feimnir, enn aðrir aðeins feitari eða grennri. En í heildina voru bara allir sætir og hópuðust í sömu hópana og við vorum vön í gamla daga. Það voru tekin sömu lögin, atvik úr útskriftarferðinni voru rifjuð upp og hlegið og dansað.
Stundum er eins og tíminn standi í stað!
miðvikudagur, maí 19, 2004
Að fá lag á heilann
Nú fer að styttast í að ég fari á 10 ára stúdentsjubileum og ég er komin með hausinn smá aftur í fortíð. T.d. var ég að muna núna rétt í þessu að ég fékk mjög reglulega lag sem byrjar svona "Þetta er lítið lag um fiðrildi og flugur .... " þegar ég var í menntó. Það var nefnilega einn gaur í bekknum mínum sem byrjaði alltaf að syngja þetta lag og þá fengu mjög margir í kring þetta á heilann.
Af hverju fær maður alltaf lög á heilann sem maður þolir í raun ekki?
Ég er nýbúin að sjá alveg hræðilegar myndir af sjálfri mér síðan á þessum menntaskólatíma.. jedúddamía .. þetta verður eitthvað blast from the past. En pottþétt hrikalega gaman!
þriðjudagur, maí 18, 2004
Hjóladagur í dag
Hæ ... ég er voða stollt af sjálfri mér, ég afrekaði nefnilega að hjóla í vinnuna og tók það alveg heilar 7 mínútur. Ekkert mál og með tölvuna á bakinu! ... bara heilmikið frískandi.
Hefur einhver sem þið þekkið ruglast á uppvöskunarvél og klósetti? Kathrine vinkona mín í Danmörku varð nefnilega fyrir því mikla óláni um daginn að fá fullan næturgest sem rataði ekki á klósettið og "bakaði köku" í uppvöskunarvélina!!!! FREKAR mikill VIÐBJÓÐUR ... hefðuð þið áhuga á að þvo diskana ykkar upp úr þeirri uppvöskunarvél? Ekki ég, svo er víst.
föstudagur, maí 14, 2004
Danskt brúðkaup
Það er ótrúlegt hvað Danir eru búnir að vera að pæla í þessu konunglega brúðkaupi. Þegar ég var úti þá voru rauð hjörtu bókstaflega út um allt, það var heldur ekki talað um neitt annað í sjónvarpinu. Ætli maður verði ekki bara að kíkja á sjónvarpið í hádeginu.
Þetta er allt voða rómantískt. Verðandi prinsessa er nefnilega svo ferlega sæt og góð, búin að læra mjög góða dönsku, á alveg yndislega fjölskyldu og er voða huggó í alla staði. En það voru vissar áhyggjuraddir í vinum prinsessunnar þar sem að hún missti mömmu sína fyrir nokkrum árum og líklegt er að elsku litla krúttið felli tár í athöfninni þar sem erfitt er að hafa mömmuna ekki til staðar á svona stóru mómenti.
En svo mitt í öllum þessum brúðkaupspælingum Dananna gerist það sem ENGINN bjóst við.... Danir duttu út úr Eurovision, íslenskættaði homminn komst ekki í gegn og allir í sjokki..... og honum var spáð sigri og allt. Svona gerast slysin!
Ég held ég sé bara að komast í Eurovisionstuð!
fimmtudagur, maí 13, 2004
Komin heim!
Jæja ... þetta var nú aldeilis skemmtilegt ferðalag. Keflavik - Köben - Álaborg - Sönderborg - Köben - Keflavik. Mjög spes að ferðast svona mikið ein en mjög gaman líka og örugglega hollt fyrir mig líka. Var ekki alveg að meika lestar á tímabili og leigði mér bíl í eitt skipti, sem var dúndurgott!
Í Álaborg hitti ég slatta af gömlum vinum og horfði á gömlu heimkynnin. Fékk svona svipaða tilfinningu eins og þegar ég bjó í Danmörku og var að koma heim, æj svona væntumþykju-ég-er-komin-heim-tilfinningu. Og svo komu hundrað litlar minningar fram og fiðrildi í magann og allt mögulegt! GAMAN.
Í Sönderborg gisti ég hjá henni Kathrine vinkonu minni og þar var MIKIÐ hlegið. Við höfum brallað ýmislegt saman sem gaman var að rifja upp og ýmis skrýtin atvik bættust við þessa helgi. Við fórum náttúrulega í brúðkaup aldarinnar.
Fallegt fólk, góður matur, lifandi jazz-goodfeel tónlist, fínar ræður, smá tár í augun, gamlir vinir, varðeldur, flugeldar og dansað fram á rauða nótt. Hvað getur maður óskað sér meira?
Köben - bara eitt orð: verslunarleiðangur!
Getum sagt það að mér sé smá illt í veskinu núna. En það jafnar sig.
Meira um ferðina næstu daga.... verð að vinna núna :)
þriðjudagur, maí 04, 2004
Denmark - her kommer jeg!
Jæja ... nú er ég circabout að deyja því ég hlakka svo til að fara til Danmerkur. Verð í viku þannig að það verður bara mbloggað - þannig að þið lesendur góðir (ef einhverjir eru) fáið að sjá myndir!
Hótelið sem ég verð á í Köben fyrsta og síðasta daginn má sjá hér. En svo verð ég bara heima hjá vinum í Álaborg og Sönderborg hina dagana. Vííííí!!!!
Hafið það gott á meðan ég er í burtu.
mánudagur, maí 03, 2004
Sjálfselska
Þetta var fín helgi. Róleg og góð. Ég, um mig, frá mér, til mín!
Þvottur var þvegin, tekið til í íbúðinni, farið á kaffihús með vinkonu minni, glápt á kassann og bara svona almennt hangið. Fékk svo tvær vinkonur mínar í mat í gærkvöldi í alveg ferlega góðan indverskan rétt (þó ég segi sjálf frá)... sem sagt kjúlli í karrý/mangó/kókos-sósu með banönum ofan á og svo meðððððí!
Myndin sem ég sá á föstudaginn var fín - Touching the void - þetta er að hálfgjöru leyti heimildarmynd og lýsir því alveg svakalega hvað klikkunin getur orðið rosaleg í hausnum á fólki sem er aleitt að reyna að bjarga lífi sínu upp á RISA fjalli. Annar gaurinn fékk t.d. hið hræðilega lag "brown girl in the ring" með Boney M á heilann!!! ... sem hann var reyndar ekki að fíla - en það bara FÓR ekki. Djö.... nú er ég komin með það á heilann.
