sunnudagur, október 31, 2004

gaggalill letiblóð

Í dag hékk ég heima ... í allan dag! Gerði EKKERT .. eða svo til ekkert, fór í sturtu reyndar og plokkaði á mér augnabrúnir og eitthvað svona brúmíng hér og þar. AND that's IT.

Langt síðan ég hef prófað þetta. Í lok dags var ég bara orðin frekar þunglynd á þessu þannig að ég fór út fyrir hús, borðaði ein á Grænum kosti með þetta fína eintak af Marie Claire fyrir framan mig (með Brad utan á) og svo í smá heimsókn til vinkonu minnar á eftir. VARÐ að hitta lifandi manneskju sem ekki var í sjónvarpinu.

Ekkert skvass í fyrramálið, skvassfélaginn er að koma frá DK í aften með nýja fis-spaðann sinn sem ég efast ekki um að hún ætli að rústa mér með! ... oooooh nei! Det duer ikke! :D


fimmtudagur, október 28, 2004

PILS!

Nei sko, mín gat þetta.... mín er í pilsos.... víííí
Maður er ekkert smá mikil pæja! hehehe

Annars er ég bara í þessum fína gír bara, lífið er skemmtilegt og blómin syngja og fuglarnir blómstra :)

miðvikudagur, október 27, 2004

Bara 20!

Góðan daginn. Ég er HRIKALEGA hress í dag, skvassið gekk vel - skvassfélaganum var ekki rústað en það fór 2-2 þannig að ég tók BARA 20 armbeygjur í dag (og hún líka).

OG ... við höfum sjálfsagt ALDREI verið sveittari. Núna eru íþróttafötin mín örugglega bara að frjósa út í bíl..... yummi!

Pæling dagsins í dag er.... ætti ég að fara í pilsi í vinnuna á morgun? Should I dare? hehehe .. þetta hefur sem sagt ekki gerst áður og mikil pæling því í gangi.

þriðjudagur, október 26, 2004

Deit dauðans

Fór að rifja upp í gær með vinkonum mínum þegar ég fór einu sinni á deit "dauðans"! Mikið svakalega er þetta fyndið eftir á.

Þetta deit dauðans bauð mér í bústað á fyrsta deiti, var mjög frumlegur og sagði: Hey eigum við að fara upp í bústað, ganga upp á Ingólfsfell og skella okkur svo í pottinn? Nota BENE að við höfðum bara talast saman í síma og skrifast á í tölvupósti. Hafði aldrei séð manninn.

Glúgg! ... ég sagði nú bara "bíddu nú við, sko, áður en við förum að hoppa saman í pottinn, ættum við þá ekki að byrja á að hittast bara á kaffihúsi"

Hafið þið farið á deit dauðans?

En að öðru ....ég er að byggja mig upp andlega og líkamlega fyrir skvassátök morgundagsins. Mér var svo rústað í gærmorgun að ég tapaði ÖLLUM 4 leikjum og þurfti því að taka 40 armbeygjur á tánum. EINS gott að þetta gerist ekki aftur. I'm gonna get you!


mánudagur, október 25, 2004

Týpískt

Fór í Ikea á sunnudaginn til að kaupa mubblurnar sem ég ætlaði að fá mér. En alveg TÝPÍSKT .. ekki til og kemur eftir 2 vikur. Ég verð víst bara að bíða... oooooooooooooh!

En ég tók samt til hendinni, tók allt úr hvíta skápnum og henti alveg böns og fór með drasl niður í geymslu og endaði á að taka smá til í geymslunni. Fjúff - ryk útum allt! En nú er allt reddí þegar nýju mubblurnar koma í hús!

Þyrfti bara eiginlega að fá einhvern með mér í að taka hvíta skápinn í sundur svo ég rústi ekki sjálfri mér og stofunni. OG hvað á ég svo að gera við þetta gamla dót. Mun ALDREI nota þetta aftur og þetta er slitið, en samt í rauninni nothæft. Ætti ég ekki bara að fara með þetta í góða hirðinn eða eitthvað? Ætli einhver finni út úr því að setja þetta saman aftur án leiðbeininga?

Annað. Ég var spurð að því tvisvar í síðustu viku hvort ég væri skyld Helgu Brögu, væri eitthvað svo lík henni! GlÚgG! Frekar fyndið!

Var líka spurð að því hvort ég væri gift á mjög furðulegu augnabliki .... en WHATEVVA!!!

Fór í bíó á væmnustu mynd ever: Shall we Dance? ... með Rikka Gír. Var alveg viss um að þetta væri frekar léleg mynd þrátt fyrir að vera sökker fyrir dans og væmnum unglingamyndum. En viti menn... þetta var nú bara alveg HRIKALEGA fyndin mynd... fullt af svona asnalegum atvikum, svona neyðarlegu stöffi ... thíhí.


sunnudagur, október 24, 2004

Lón og hillur

Það var alveg frábært í lóninu. Ísland skartaði sínu fegursta og útlendingurinn var uppnuminn yfir bleikum himni og mystíkinni sem gufan myndar þarna in the blue lagoon.

Í gær afrekaði ég það að þvo bílinn minn. Hef ekki gert það ALLTOF lengi og mikið er hann sjæní og sætur núna. Það hjálpar mér mjög mikið að vera ENN meiri gella þegar bíllinn manns er svona glæsó thíhí.

En í dag er annað verkefni fyrir höndum. Nú á nefnilega að kaupa nýja hillusamstæðu í stofuna. Ég er búin að vera með hvíta hillusamstæðu síðan ég var 11 ára og núna er mælirinn fullur! GET EKKI MEIR. Búin að fá ÓGEÐ! Ég fékk pening upp í samstæðuna í afmælisgjöf og er ekki enn farinn að nota hann þannig að nú er komið að því!!! vííííí!!! Ikea here I come.

föstudagur, október 22, 2004

Blue lagoon

Mín er að fara í lónið með útlendingi núna á eftir kl. 16:00 ... í þessu blíðskaparveðri alveg hreint.
Er bara farin að hlakka til .. svei mér þá.

En hvað segið þið annars gott? Ég hef það bara á tilfinningunni að fólk sé bara alveg hætt að lesa þetta hjá mér.

Er eitthvað sem betur má fara hér? ... er þetta að verða alveg dEaDbOrInG hjá mér?

miðvikudagur, október 20, 2004

Fyndin pæling í morgunsárið

Ég var að ræða við vinkonu mína í vinnunni hérna áðan á MSN og við gerðum svakalega uppgötvun:

Stúlkur sem eru ungar, einhleypar, barnlausar og graðar eru frábærir starfsmenn!!!!

Öll kynferðisleg orka fer í vinnutengd málefni og engin börn til að toga í mann heim, enginn karl heldur = ekkert vesen. Eins gott að muna þetta þegar kemur að því að við förum að ráða fólk!!!!

Kynlíf tvisvar á ári (eða minna) er alveg feikinóg! ... verð betri starfsmaður fyrir vikið!

sunnudagur, október 17, 2004

Lúxus

Ég er búin að eiga lúxus helgi. Bara chillaði og hafði það gott. Fór í smá hjólatúr (í vinnuna að sækja bílinn), borðaði á Vegó, lagði mig og fór í risa göngutúr í gærkvöldi.

Í dag er ég bara að chilla líka! ... voða fínt, langt síðan þetta hefur gerst :) Það er líka alveg ágætt að vera ekkert að gera mikið þar sem mér er smá illt í veskinu eftir USA ferðina hehe.

Mig dreymdi vangefinn draum í nótt. Var að aðstoða hana Lottu vinkonu mína við að vera ólétt. Hún var sem sagt á steypirnum í draumnum (er ekki ólétt svo vitað sé í dag) og hún var búin að fá nóg af þyngslunum og við fluttum bara kúluna hennar á mig! Djís hvað þetta var erfitt! Og vá hvað ég dreymi asnalega drauma!!! Við vorum meira að segja að reyna að finna nafn og nafnið Unnur kom skýrt fram.

Maður er náttúrulega smá klikk, en ætli þetta hafi ekki bara eitthvað með það að gera að þrjár mjög nákomnar frænkur og vinkonur eru óléttar: Guðrún Rósa frænka, Sigrún frænka og Elsa Þóra babe í útlöndum. Eða er hægt að ráða þennan draum eitthvað frekar?

Fallegt að líta út um gluggann núna! heiðskírt og fínt. Eruð þið eins og ég, látið stjórnast af veðrinu? thíhí

föstudagur, október 15, 2004

Vangefin vika

Endalausir vinnudagar í vinnunni, unnið fram á kvöld til að ná að klára það mikilvægasta, saumaklúbbur á þriðjudaginn og ég gerði persónulegt met í undirbúningi fyrir hann: versla, þrífa og elda á 2 tímum, en sem betur fer var saumó því ég varð að fara að sjá önnur andlit en þau sem tilheyra vinnunni, 60 tölvupóstar sem bíða núna og vinnudagur á Nordica að hefjast, redda þessu um helgina!

Helgin er lítið plönuð svona að öðru leyti, vill einhver vera memm?

föstudagur, október 08, 2004

bara bara rabbabara

Fór á EDIT PIAF ekki Evitu ... smá rugl í hausnum á mér. Og þetta var alveg geggjaðslega flott! Svakalega sem þessi litla manneskja sem leikur Piaf getur SUNGIÐ. Vá maður!

Fór í skvass í morgun og endaði á að þurfa að taka 20 armbeygjur á TÁNUM af því að ég tapaði tveimur leikjum (10 fyrir hvern tapaðan leik). Erum sem sagt komnar með nýjar reglur til að gera þetta meira spennandi. Þetta er að svínvirka, við leikum eins og brjálæðingar því að við viljum ekki lenda í þeirri niðurlægingu að þurfa að gera armbeygjur á meðan hin telur. En sem betur fer var þetta nokkuð jafnt í dag - ég tapaði tveimur leikjum og makkerinn minn tapaði tveimur líka. NÆST verður StRíÐ!

fimmtudagur, október 07, 2004

Mennó!

Mín er ekkert smá mennó þessa dagana ... í kvöld er ég að fara að sjá Evítu með mútter! vííí mér er sagt að það sé ferlega flott sjóv!

En vitiði hvað? ... nei þið vitið ekki hvað, nema kannski sumir. Ég skal segja ykkur.... sko... þegar ég var að fara út í morgun var ég smá að flýta mér í sund (ætlaði að hitta vinkonu mína þar) og hendist út með íþróttatöskuna, tölvutöskuna og poka með morgunmat í og fattaði um leið og ég skellti á eftir mér að ég var ekki með kellingaveskið mitt. Sem sagt ... ég var húslyklalaus, gsmsímalaus, peningalaus en sem betur fer ekki bíllyklalaus! Mér hefði fundist ég vera ALLS laus ef ég hefði ekki haft bíllyklana.

En jæja ég æsti mig ekkert mikið yfir þessu og fór af stað í sundlaugina og fattaði þegar ég var komin þangað að ég var ekki með pening. Rölti að afgreiðsluborðinu, brosti og var sæt og sagði: "Ehemm, ég vaknaði smá vitlaust í morgun og gleymdi veskinu heima, en vinkona mín ætlaði að hitta mig hér og er sennilega komin ofan í..... er í lagi að ég borgi á leiðinni út?" .... Sem betur fer var konan morgunhress og góðleg og sagði að það væri nú ekki neitt mál!

Málinu var reddað og mér boðið í sund af vinkonu minni! (Greinilega mjög gott trix til að komast ókeypis í sund hehehe).

laugardagur, október 02, 2004

Leikrit

Fór á leikritið VODKAKÚRINN á miðvikudagskvöldið (mitt í öllum hasarnum) og skemmti mér alveg prýðilega. Þetta var ferlega fyndið enda eru engir aukvisar þarna á ferð: Helga Braga og Steinn Ármann. Hélt ég myndi kafna úr hlátri í dansatriðunum, þau eru alveg brill. Mæli með þessu!

föstudagur, október 01, 2004

Heiladauði.is

Prófið er búið
Hrikalega erfitt
Djöflaðist í 3 tíma
Var enn að skrifa þegar tíminn var úti
Skellti mér í vinnuna í stresskasti, köld á höndunum og hausinn á yfirsnúningi
Þarf að vinna smá
Svo lúll
Svo Idol

... niðurstaða prófsins kemur eftir 6-8 vikur .... ma ma ma maður bíður bara spenntur!