föstudagur, júlí 30, 2004

Eyjar 2004

Jæja fólkens, ég legg af stað á morgun (í hádeginu) til Eyja. Ætla mér að komast þangað, þannig að ef ekki verður flogið fer ég í Herjólfsdallinn!

Allt er að verða græjað, stígvélin og lopahosurnar komnar í hús, bara eftir að kaupa mér buff til að hafa um hausinn. Verð gríðarlega smart ... I'm telling you!

En alla vega ef þið viljið sjá eitthvað af þessum smartheitum, eða smartheit annars Símafólks, þá erum við með sameiginlegt mblogg undir nafninu Eyjar2004. Hér er LINKUR.

Hafið það svo sem allra best um helgina!

fimmtudagur, júlí 29, 2004

Afmæli og eyjar

Ég átti líka þetta fína afmæli á þriðjudaginn, ógisslega gaman, einn af skemmtilegri afmælisdögum sem ég hef átt. Frábært alveg og svo er ég orðin 30 år gammel sem þýðir að núna á ég að vera orðin þroskuð KONA.

En til að sýna þroska minn ætla ég að fara til Eyja um helgina og í stað þess að gista í tjaldi mun ég verða í heimagistingu á Hótel Björk. (Björk er sem sagt vinkona mín sem hefur tekið hlutverki sínu mjög alvarlega þannig að ég sé fram á svaka flotta dvöl). En þar sem útlitið er ekki gott svona veðurlega séð þá er ég að spá í að skella mér í stígvélabúð og kaupa mér eins og eitt par af svona old fashion gúmmítúttum... skv. leiðbeiningum Bjarkar sem er vön þjóðhátíðarskemmtari.

fimmtudagur, júlí 22, 2004

Veiði

Jæja .. ég er á leið í bústaðinn við Þingvallavatn, ætla að vera þar í tvo daga, aldrei að vita að ég taki myndir. Ætla mér að næla mér í einn stóran (fisk ekki karlmann). Vona að það gangi betur að veiða fisk en mann! héhéhé

Annars er það að frétta að ég er búin að ákveða að fara á þjóðhátíð í Eyjum... vííí .. allt klappað og klárt. Fer af stað á laugardagsmorgunin, hef ekkert við það að gera að vera lengur ... kona á mínum aldri ... já fólkens, verð 30 ára á þriðjudaginn ligga ligga lái!

Góða helgi og ha det bra!

miðvikudagur, júlí 21, 2004

Myndir

Jæja elskurnar þá er ég komin heim í heiðardalinn .. ég er komin heim með slitna skó!!! ... já ég sver það að skórnir sem ég var í mest allan tímann voru orðnir svo slitnir að ég skildi þá bara eftir (skúringakonan getur bara tekið þá í tips eða eitthvað).

Þetta var alveg frábær ferð. Passlegasta ferð sem ég hef farið í. Passlega mikið sólbað, passlega mikið skoðað, passlega mikið djammað, passlega mikið borðað, passlega mikið helgið, passlega mikið grenjað (ekkert sem sé) og passlega mikið af flottum grískum karlmönnum til að horfa á (bara horfa ekki snerta).

"Myndir myndir myndir" (sungið við allir dansa kónga) - eru að finna með því að mella á linkinn "digital myndir" hér til hægri - möppurnar "Krít" og "Santorini" .... ENJOY!

föstudagur, júlí 02, 2004

Síðasta bloggið í bili

Jæja .. þá er komið að kveðjustund! Ég fer til Krítar á mánudaginn þannig að þetta er síðasta bloggið þar til ég kem aftur. Þetta verður nú meiri gleðin!
Hér er ein mynd frá Chania .... set svo fullt af myndum á netið þegar ég kem tilbaka :)... víííííííí :P

fimmtudagur, júlí 01, 2004

Þórsmörk - lokað vegna veðurs!

Jæja þá er ég búin að ákveða það. Ætla ekki í Þórsmörk um helgina. Of mikið stress fyrir Krítarferðina .. sem er by the way á mánudaginn ... ef það skyldi hafa farið fram hjá einhverjum hehehe

En svo er spáð glötuðu veðri þar um helgina þannig aaaaaaaaað ... þið hin sem farið: Skemmtið ykkur wunderbar vel, ég mun hugsa til ykkar með sjóhattinn á hausnum.