Á morgun!
Stundin er að renna upp, á morgun fer ég til RIMINI víííí. Ég mun því ekki skrifa neitt hér á meðan en endilega skoðið mbloggið. Það gæti verið að það muni leynast ferðasaga þar í máli og myndum ;)
Ciao í bili
gaggalill
um allt og ekkert
mánudagur, júlí 28, 2003
sunnudagur, júlí 27, 2003
Afmæli
Hey! Ég á afmæli í dag, svaka stuð! Á deit í hádeginu með Láru vinkonu, svo fer ég í tvö afmæli á eftir, fyrst hjá "tvíburafrænkunni" og svo hjá systursoni mínum ... já vinsæll dagur sko :) Þetta verður örugglega fjör, vííí.
En svo er ég komin með mBlog síðu, smellið á linkinn hér til hægri og leitið að notandanum "spragga" .. það er ég! Ítalíumyndir væntanlegar hehe.
Ítalía: Ekki á morgun heldur hinn!
föstudagur, júlí 25, 2003
Þrífiþrífi
Í dag er ég búin að njóta mín alveg svakalega. Ég er búin að þrífa og þvo þvott, fara í búðir og heimsókn til vinkonu minnar, og þrífa og þvo þvott aftur ... vííí íbúðin er bara að verða nokkuð sjæní bara. Annars var ég svo heppin að mamma vinkonu minnar spáði í bolla fyrir mig áðan og viti menn, bollinn sagði að ég væri að fara í skemmtilegt ferðalag og svo var einhver kyssilegur ítali þarna hehe, á maður að trúa þessu? Alla vega voða gaman að þessu.
Ítölskukennsla dagsins: Kaffibolli => la tazza di caffè
4 dagar til brottfarar
fimmtudagur, júlí 24, 2003
Sumarfrí
Júbbíjeij, þá er sumarfríið mitt byrjað, mikið er ég glöð. Held bara að ég hafi þurft á smá fríi að halda þrátt fyrir að þykja gaman í vinnunni. Núna er bara að ganga frá ýmsum málum, þrífa íbúðina og þvo þvott áður en ég fer út. Gaman gaman.
Og nú að ítölskunáminu mínu: Hvar er lestin til Milano? => Dove il treno a Milano è?
6 dagar .......... víííííííí!
þriðjudagur, júlí 22, 2003
Gamlir og góðir
Ja hérna, núna hefur hljómsveitin Brimkló tekið saman aftur og ætlar á hljómleikaferð um landið. Ekki leiðinlegt! Alltaf gaman að fara á böll þar sem ALLIR kunna lögin. En nafnið BRIMKLÓ ... hvurslags nafn er það nú eiginlega? Brim er svona fruss í sjónum og kló er svona dót eins og Árni Johnsen er með á gítarnum sínum. Ætla þau virkilega að reyna að klófesta brimið? ... eða er brimkló kannski bara annað nafn fyrir haförn? Ja hérna, ég held ég mundi ekki vilja kalla hljómsveitina mína eftir haferni, ekki syngja þeir neitt sérstaklega fallega!
Væntanleg niðurstaða könnunarinnar sem er í gangi er sú að ég ætti að notast við gamla góða sólaráburðinn .... og ég sem hélt að froðan væri best!
La vacanza in Italia in 7 giorni - sem sagt 7 dagar til stefnu
mánudagur, júlí 21, 2003
Rigning og nördar
Ótrúlegt! .. ég bý á Íslandi og það komu 5 æðislegir dagar í röð og svo kom rigningin og ég er að frjósa úr kulda. Hvurslags kuldaskræfa er ég eiginlega? Thíhí.
Ég var að lesa moggann og sá að nú erum við íslendingar bestir í stærðfræði. Já við getum sko potað okkur áfram. Sem sagt ... íslenskur strákur hefur náð því að fá brons í ólympíuleikunum í Stærðfræði. Ekkert smá glæsilegt hjá honum. Nördar eru æði. Finnst ykkur það ekki annars?
Italiano ferðalagur eftir 8 daga ........ and counting!
sunnudagur, júlí 20, 2003
Skorradalur rokkar
Ég er búin að vera í veðursældinni upp í Skorradal að hafa það huggó og taka til hendinni í bústað foreldra minna. Mikið óskaplega er nú gott að vinna svona líkamlega vinnu annað veifið. Og ekki er það ónýtt að hafa manneskju með í för sem hefur yndi af því að elda góðan mat ofan í mann reglulega. Já hún móðir mín er góð kona. Pabbi er líka alveg duglegur við að kenna mér hin ýmsu tækniatriði sem tengjast bústaðasmíð og sagði að ég gæti alveg gert þetta "næstum" jafn vel og hann, þó ég væri verkfræðingur. Húmorinn var á svaka flottu kaliberi. Góð helgi!
Italiano bertolucci mama eeeh eftir 9 daga
föstudagur, júlí 18, 2003
... með sól á heilanum
Ég er að reyna að vinna en ég er bara alltaf með sól á heilanum. Kannski ekki skrýtið því að pabbi hringdi áðan úr Skorradalnum og sagði að þar væri eins og að vera á Mallorca, 30 stig og sól. Ekki hefur sólin látið sjá sig hér í höfuðborginni neitt að viti enn, en hún er á leiðinni og hitinn er örugglega 18 eða 19 gráður. Ég skelli mér örugglega þangað eftir vinnu og fæ smá skerf af sólinni.... vonandi! Svo er það spurning um að skella sér í sund kannski líka. En svo var ég líka að fá vikulegar veðurfréttir frá Rimini í tölvupósti núna rétt áðan og þar er líka "skyggni ágætt" og "feeling hot hot hot" dæmi í gangi.
fimmtudagur, júlí 17, 2003
Bikini- og sundbolapælingar
Jæja! Þá er ég búin að vera að skoða svolítið af sundfötum. Slatti til, en ég er einhvern veginn ekki að finna neitt sem mig langar í eða passar mínu mjög svo sérstaka vaxtarlagi. En þetta kemur allt, keypti mér alla vega bikinibuxur áðan, sem er mjög gott mál. Svo er spurning með efrihlutann og jafnvel 1 stk. sundbol líka. Þess má geta að sundbolur er "il costume da bagno" á ítölsku og er ég mjög stollt af sjálfri mér að hafa flett þessu upp.
12 dagar til brottfarar
miðvikudagur, júlí 16, 2003
Sól sól skín á mig
Ekki slæmt veður í dag! Fullt af sól. Túristarnir verða ánægðir með þetta og treysta sér örugglega að fara úr úlpunum og vera BARA í flíspeysum í lognmollunni í dag. Þegar ég var á labbi í gær í miðbæ Reykjavíkur var alveg stórkostlegt að sjá allt þetta litríka túristafólk út um allt, voða gaman. Sumir voru heimilslegri en aðrir og elduðu sér kvöldmat fyrir framan Jón Sigurðsson á Austurvelli. Mjög huggó! Já, hvað er betra en spælt egg og súpa, matreitt á prímus fyrir fram Alþingi Íslendinga? Í þokkabót eru listaverk út um allt sem hægt er að njóta á meðan matnum er rennt ljúflega niður. Túristar kunna að skemmta sér!

13 dagar til brottfarar
þriðjudagur, júlí 15, 2003
Að læra ítölsku
Ég kíkti í bókabúð áðan með ferðafélögum mínum og við fundum þessar fínu bækur um Ítalíu og ítalska tungu. Þarna var ein alveg brill bók sem hét eitthvað í þessa áttina "Italian, words that weren't taught in school". Þarna voru alls konar fróðlegar setningar og mjög nothæfar fyrir fólk með mikla kímnigáfu. Þrátt fyrir að langa alveg svakalega í bókina tímdum við ekki að kaupa hana.

En svo fór ég að velta fyrir mér, er ekki hægt að læra ítölsku á netinu? Og viti menn ég fann síðu sem kennir ítölsku ókeypis. Allir smella hér og læra ítölsku :)
14 dagar til brottfarar
mánudagur, júlí 14, 2003
Wanted!
Þegar ég var að borða morgunmatinn í sakleysi mínu í mötuneytinu, birtist þessi líka svakalegi lover sem ekki hefur áður sést í byggingunni. Við vorum þarna nokkrar og kikknuðum svo mikið í hnjánum að ef við hefðum ekki sitið niðri, hefðum við kolfallið allar í hrúgu. Getgátur eru um að maðurinn hafi verið sölumaður hjá einhverju matvælafyrirtæki og lýsi ég hérmeð eftir manninum. En víst ég er í þessum pælingum læt ég fylgja með mynd af öðrum mjög svo kjúttlegum manni.

15 dagar til brottfarar - ætli það séu einhverjir svona sætir á Ítalíu?
sunnudagur, júlí 13, 2003
Riminilagið
Í dag var ég að smíða upp í bústað og ótrúlega mikill tími fór í að hugsa á meðan. Ég var t.d. að pæla í því hvaða lag verði "Riminilag" sumarsins. Ég væri alveg til í að vita það fyrirfram hvaða lag þetta verður því að þá get ég verið virkilega vel undirbúin fyrir ferðina. Eða alla vega í geðveiku stuði þangað til hehe.
16 dagar til brottfarar
laugardagur, júlí 12, 2003
Pæling
Fínn sólardagur í gær, ég tók mér frí eftir hádegi og nýtti sólina vel. Fór í IKEA, þreif bílinn að utan og innan og fór svo í sólbað til vinkonu minnar. Voða huggó, held meira að segja að ég hafi fengið smá lit. En í dag er veðrið ekkert spes en það gerir svo sem til. Ég á það til að finna mér eitthvað skemmtilegt að gera þrátt fyrir slæmt veður.
Ég var að skoða hitt og þetta á netinu áðan og datt í hug að skoða hvað hann Sting gamli væri að bralla þessa dagana. Á www.sting.com kemur fram að hann er að fara að gefa út nýja músik og heimasíðu í ágúst. Spennó spennó!! Hann er alltaf svo djúpur eitthvað ...... gaman að því!
17 dagar til brottfarar
föstudagur, júlí 11, 2003
Ofnæmi í sólinni og sólarexem
Þegar ég fer að hugsa þetta meira virðist vera að ég þurfi að fara með heilt apótek með mér út til Rimini. Það er nefnilega þannig að þegar maður fer svona til útlanda getur maður fengið ofnæmi við ýmsu t.d. eins við fyrrnefndu flugnabiti. Þetta er alla vega eitthvað sem hún móðir mín, hjúkkan, mundi muna eftir að taka með þrátt fyrir að hún sé frekar á móti því að fólk taki pillur nema í neyð. En svo er það blessað sólarexemið, ég á það til að fá oggupínulítiðpons af svoleiðis og þegar það gerist er viturlegt að hafa með sér "hydrokortison" til að laga það. EN nú er mælirinn fullur, ég ætla ekki að taka fleiri lyf með í fríið og ég ætla helst ekki að tala um lyf meir. Mér er farið að líða eins og gamalmenni á leið til Grand Canary.
18 dagar til brottfarar
fimmtudagur, júlí 10, 2003
Sólarvörn
Já, þá er að huga að sólarvörninni. Uppi eru alls konar hugmyndir um hvernig, hversu mikið og hve oft á dag maður á að bera á sig. Ég hef voða litla skoðun, fer yfirleitt svona ca. eftir leiðbeiningunum. En það hefur orðið svakalega mikil vöruþróun á þessu sviði síðustu ár. Núna eru til alls konar sprey og froður ásamt hinu týpíska kremi. Og hvað á ég svo að kaupa? Ég er svo mikill lukkunnar pamfíll að ég er að fara að ferðalag með manneskju sem kann öll trixin í bókinni þegar sólböð eru annars vegar. Og það sem meira er, afi hennar og amma eru með mastersgráðu í sólbaðsfaginu. Þetta fólk hlýtur að aðstoða mig í vali á vörn. Eeeeeeeen ætli þau viti af hinum stórfenglegu höfuðfötum með sólarvörn???? Hér er mynd af einu slíku:

miðvikudagur, júlí 09, 2003
Sólflugnadót
Nú þarf að fara að huga að blessuðum sólflugunum. Ekki vegna þess að það er svo mikil sól úti akkúrat núna, heldur af því að það er best að vera öllu reiðubúinn áður en maður fer til Rimini. Ýmsar hugmyndir eru uppi um hvernig maður losnar við að flugur stingi sig. Það er til dót til að stinga í samband í íbúðinni sem fælir flugur frá, svo er hægt að nota b-vítamín til inntöku og dreifingar um allt gólf. Nú svo er hægt að kaupa sér sprey til að spreyja á sig og þá stinga þessar elskur mann víst ekki, enda ekki furða því þá er svo vond lykt af manni. Sumir segja að maður eigi hreinlega að sleppa notkun allra ilmefna til að sleppa við stungur en mér finnst sú hugmynd ekkert sérstaklega góð. Mig langar alla vega ekki að lykta eins og jói á netabolnum í útlöndum. En svo gæti verið nauðsynlegt að eiga eitthvað til að bera á stungusár til þess að minnka kláða, ef ske kynni að maður yrði óheppinn. Úff mér sýnist að ég þurfi að fara með Hagkaupskerru í apótekið ........ annað hvort það eða sleppa því að vera paronoid.
20 dagar til brottfarar.
þriðjudagur, júlí 08, 2003
Vinnan í hnotskurn
Vinnan mín er mjög skemmtileg, en í dag er hún mjög misskemmtileg. Ég er til dæmis ekki að fíla þegar tölvur og serverar krassa, ég er heldur ekki að fíla að allir séu farnir í sumarfrí nema ég. En þar sem ég er að fara í ferð til Rimini þann 29. júlí sleppur þetta. Ég vil sérstaklega benda á að veðrið þar núna er nokkuð gott eins og sjá má hér.
Niðurtalningin er hafin 21 dagur til brottarar.
mánudagur, júlí 07, 2003
Komin til byggða
Jæja þá er ég komin aftur í borgina! Borgarbarnið ég er bara svolítið fegið því að vera lent aftur. Er ekki alveg hún venjulega ég í dag, smá utan við mig og svona, en þetta jafnar sig fyrr en síðar. En báðar markirnar (bæði Danmörk og Þórsmörk) voru alveg glimrandi fínar. Það hefði mátt vera aðeins minni rigning á báðum stöðum......... en þetta slapp alveg. Planið er að reyna að fá einhverjar þórsmerkurmyndir hingað á vefinn, sjáum hvað gerist!
