Nýtt útlit svefnherbergis!
Ég er nú aldeilis búin að hafa nóg fyrir stafni um helgina. Ég er sem sagt búin að endurskipuleggja svefnhverbergið mitt, keypti sem sagt 2 náttborð og eina kommóðu og henti hinu ljóta gamla draslinu út .... júbbíjeijjjjjj!!!
Ég get svarið það ég held ég hafi bara sofið betur fyrir vikið..... ekki það ég sofi venjulega eitthvað illa :) En alla vega er svefnherberið orðið innlit-útlit-fært hehe.
En þetta var nú ekki það eina sem ég gerði. Ég hafði 2 mínímatarboð, fór í heimsókn til vinafólks og fór í einn ágætis göngutúr. Gott að nýta helgarnar í svona maður.
Nú er verkefni dagsins að kíkja á nýfædda tvíburana hennar Önnu Sv. vinkonu minnar.......... Örugglega svoooooooo sæt!
gaggalill
um allt og ekkert
