Frænkuhelgi og svona
Ég fór í bústað með frænkum mínum um síðustu helgi (reyndar bara í eina nótt) og það var algjört æði. Borðaður góður matur, slappað vel af, farið í pottinn, hlegið og lesið svo eitthvað sé nefnt.
Eins og má sjá var líka lesið svolítið, með mismiklum áhuga:
Svo skelli ég mér í klst hugleiðslu fyrr í dag... algjört æði. Ætla sko að endurtaka það næstu viku, mjög gott eftir strembna viku í vinnunni (þar sem af er).
gaggalill
um allt og ekkert
miðvikudagur, ágúst 31, 2005
sunnudagur, ágúst 28, 2005
Ehemm .. já veit upp á mig sökina!
Er að spá í að reyna að taka upp þráðinn hér.
Síðast þegar ég skrifaði var ég í vikusumarfríi og ég hef ekki farið í frí síðan.
Sumarið er þó búið að vera skemmtilegt, mikil vinna en MJÖG skemmtilegar helgar.
Ég fór t.d. í 4 daga gönguferð með Selmu vinkonu minni á Sveinstind og Skælinga og það var rosalega erfitt, gaman og fyllti gjörsamlega á batteríin.
Er einnig búin að fara í ýmsa bústaði: Í Skorradalinn til M&P, vestur í Dali með krúttinu, fjölskylduhátíð á Stóra-Hofi og frænkuhelgi í Úthlíð svo eitthvað sé nefnt.
Svo voru það öll brúðkaupin: Anna Svanhildur og Ási giftu sig, Elsa Þóra og Trausti líka og loks Haukur frændi og Fanney. Alltaf gaman að fá að taka þátt í svoleiðis fögnuði með fólki.
Og til að taka smá framkvæmdir inn í myndina þá er búið að skipta um þak heima hjá mér, loksins loksins :)
Framundan: LONDON BABY með saumó .... þar verður örugglega gaman, kíkt í búðir, út að borða, á markaði, kannski eitt show... og frí í heila 5 daga!
