miðvikudagur, mars 31, 2004

Viðskiptafréttir

Held það sé skemmtilegra að eiga í viðskiptum í Færeyjum, alla vega er virðist síðan hjá Kaupthingi í Færeyjum vera skemmtilegri en sú íslenska. Endilega skoðið hér.

Endamálið hjá Kaupthing er at geva viðskiftafólki sínum bestu íløguráðgeving og tænastu sum møguligt.

Þetta blogg var inspirerað af henni Önnu vinkonu minni.

Ljóð

Í dag er dagurinn sem ég gerðist ljóðskáld.
Ég varð nefnilega svo inspireruð þegar ég vaknaði.
En svo fannst mér þurfa vera rím.
En ég á ekkert uhu lím,
þannig að það gekk ekki.
Hamingjuóskir og blóm vinsamlegast afþökkuð.

þriðjudagur, mars 30, 2004

Var að lesa fréttir

Það er nú bara ýmislegt fréttnæmt, t.d. eins og það að íslenska þjóðin virðist ekki alveg vera að fíla nýja Eurovision lagið. Skil nú ekkert í því - voða fín ballaða sko :)

Svo var ég að lesa einhvers staðar á netinu áðan að Penelope Cruz virðist hafa farið beint úr örmum Tom Cruise í arma Matthew McConaughey. Sumir eru heppnari en aðrir .. say no more!

Þetta voru nú aldeilis hressandi fréttir svona í morgunsárið.... eigið góðan dag.

mánudagur, mars 29, 2004

Furðuverk

Ég er furðuverk ... samt ekki með silicon neins staðar, syng ekki á almannafæri, hef ekki brotið neitt af mér, fer stundum í badminton og sund. EN GLEYMI ALVEG AÐ BLOGGA HÉR!!