mánudagur, september 27, 2004

Prinsinn

Ég er byrjuð á námskeiðinum (PRINCE2 - Projects In Controlled Environment) og það gengur alveg fínt. Kennarin er stórsniðugur og ég var meira og minna brosandi í allan dag, ótrúlegt hvað einn maður getur gert frekar þurrt málefni mjög spennandi. Var þarna frá kl. 9 til 17:15 og leit ALDREI á klukkuna.

En það er samt kominn smá prófskrekkur í mig því að hann var að vara okkur við að þetta væri nú erfitt og við yrðum að læra heima í ca. 2,5-3 tíma á kvöldin! LÆRA HEIMA!!!???!!! jeminn tjeminn.... eins gott að standa sig!

föstudagur, september 24, 2004

Sumar vikur eru vangefnari en aðrar

Hæ hó .. ég er komin frá Boston og NY fyrir löngu, ógeðslega gaman, mikið keypt og frábært að hitta hana Rósu mína.

Ýmislegt er svo búið að gerast síðan úti. Yfirmaður minn í vinnunni sagði upp, starfi mínu var breytt, gaurinn sem ég var hrifin af sagði mér að eiga mig og brjálað að gera í vinnunni.

Um helgina er ég svo að fara að læra fyrir próf sem ég fer í næsta föstudag - verð á námskeiði alla næstu viku og þarf samt að vinna vinnuna mína ... sem sagt brill vika framundan! En ég hlýt að meika þetta einn dag í einu :)


föstudagur, september 10, 2004

Komin til Boston!

Ég hef það þrælfínt hér í Boston. Sit við morgunverðarborðið hjá Rósu og er komin á netið til að tékka á tölvupóstum og skoða fyrstu mblog myndina sem er komin af Rósu.

Fylgist endilega með hér.

miðvikudagur, september 08, 2004

Hlakki-til

Nú fer þetta að styttast. Get varla talað/skrifað því ég er svo spennt að fara til ÚTTLANDAH.



fimmtudagur, september 02, 2004

Boston/NY - eftir viku!

Jæja það er kominn spenningur í mína. Er svolítið mikið að pæla í hvað hægt sé að gera sér til dundurs í Boston og NY. Ég reikna nú með að þetta verði frekar auðvelt í Boston þar sem Rósa vinkona er örugglega mjög hæfur guide!

En varðandi NY þá er ég komin með ferða/vinnufélaga til að eyða tíma mínum með þar, og ekki af verri endanum, Slaug heitir hún og hefur ferðast með mér áður.... við erum farnar að kunna þetta!

Verðum á ágætis hóteli við Times Square þannig að það er stutt í búðirnar ... auðvelt að kíkja í smá labbitúr í hádegismat og svona :D

Planið er svo að vera "rich bitch in foreign countries" á kvöldin og fara flott út að borða. Veit einhver um veitingastað á Manhattan sem maður gjörsamlega VERÐUR að fara á?