föstudagur, febrúar 25, 2005

Heija Norge!

Ég er komin til Elsu og Trausta í Noregi og er búin að hafa það virkilega gott síðasta sólahringinn.
Það er reyndar smá kalt hérna en ég lifi það nú af hehe.

Planið er að fara í bæinn í Osló núna á eftir og hitta Oddbjörgu þar ..........og H&M verður pottþétt tekin með stormi! Jeij

mánudagur, febrúar 21, 2005

Ging gang gúllí

Helgin var aldeilis fín og afslöppuð. Var heima hjá systur minni að gæta krakkanna hennar, sem fólst aðallega í því að gefa þeim að borða og ganga frá eftir þau :) ... enda orðnir unglingar sem hafa nóg að dunda.

Og svo í gær kíkti ég á frekar þunglynt en mjög svo vel leikið leikrit í Þjóðleikhúsinu. Leikritið hét sem sagt Mýrarvatn. En sem sagt það var lán í óláni að pabbi minn hafi verið lasinn því að hann og mútta eiga fasta miða í leikhúsið og mömmu vantaði "deit". Og þar sem tilboðunum streymdi ekki inn af huggulegum deitum, á sjálfan konudaginn, sló ég til og tók tilboði mömmu pæju. Rosa huggó puggó.

Ooooog nú styttist í Noregsferð! ....... 3 dagar til stefnu.

mánudagur, febrúar 14, 2005

Helgin

Rosalega róleg helgi maður.
Gerði EKKERT hvorki föstudags- né laugardagskvöld, sem hefur ekki gerst lengi.
Var reyndar mennó í gær.
Fór fyrst með mömmu og tvíburasystur hennar á Listasafn Reykjavíkur að skoða sýninguna hennar Rutar Rebekku og svo á kaffihúsið Te og kaffi ég eftir.
Svo fór ég í bíó og sá myndina Sideways ... sem var frekar skrýtin mynd, en lúmskt gaman að henni.

Var svo að ákveða í gær að drífa mig til Rósu til Boston í vor, best að fara að panta miða :)

fimmtudagur, febrúar 10, 2005

Jæja

Mikið var að beljan bara í fjósinu hjá honum Valdimar .....

Er búin að vera að gera fullt.
T.d. vinna og hitta fullt af fólki, hér og þar.
Á mánudagskvöldið fór ég t.d. í kjötbollur til M&P og þar var familían samankomin .. voða fjör!
Fór í bíó í gær á "Meet the fockers" - fyndin mynd :)
Svo út að borða á Angelo á laugarvegi. Nýr staður - ágætis matur en svolítið óöryggi í þjónustunni.
OG í kvella er ég að fara að hitta nokkrar vinkonur mínar frá DK .... ef þær komast!

já og þá er pistli dagsins lokið :D

sunnudagur, febrúar 06, 2005

Lokað vegna vinnu

Það er brjálað að gera hjá mér í vinnunni, það verður gert smá hlé á blogginu.