laugardagur, maí 28, 2005

Jeddúddamíastur!!!!

ÞETTA VAR ÆÐI.... nú held ég sé orðin húkkt á U2 tónleikum og mig langar bara á fleiri.
Strákarnir voru æði, skemmtu sér vel, spiluðu meira að segja lög sem ekki voru undirbúin, voru hlæjandi og flissandi, stríðandi hverjum öðrum. Þeir spiluðu meira að segja lengur en þeir eru vanir og fólkið í salnum var bara ALLS ekki á því að fara heim. Enginn smá fjöldi þarna.

Ég var staðsett alveg upp við ellipsuna sem kemur út frá sviðinu og sá því goðin mjög nálægt, ekki leiðinlegt það! Við Rósa enduðum með að tárast smá yfir þessu ... þó ekki á sama tíma! Lagið One gerði útslagið hjá undirritaðri.

Sviðið var rosalega flott og ljósasjóvið algjört æði. Pabbi hefði fílað það hugsa ég, held reyndar að hann hefði misst sig yfir öllum græjunum þarna (kannski smá sterkt til orða tekið).

Ég tók slatta af myndum á símann minn, sjá nánar á mblogginu mínu.

Ein ráðlegging: FARIÐ á tónleikana í Osló (27. júlí) eða Köben (29. júlí) .... VEL þess virði.

Hér eru myndir sem áhorfandi tók á tónleikunum.

fimmtudagur, maí 26, 2005

U2 - BOSTON


Við sjáum töffarana eftir nokkrar klst - fremst við sviðið

Það sem fólk finnur!

Ég var að lesa local blað hér í Boston og það var verið að tala um þrælsniðuga heimasíðu:

http://www.foundmagazine.com/

Fólk sendir á umsjónarmenn síðunnar miða og myndir og allskonar dót þar sem það finnur á götunni. Ef maður t.d. skoðar "find of the week" er sætur miði sem á stendur "I want to buy you a lot of petty things and shyly offer them to you one at a time" .... svo krúttlegt!

PS. Gleðilega hátíð! ... U2 tónleikar í kvöld :D

miðvikudagur, maí 25, 2005

Sumarfrí í Boston

Já dömur mínar og herrar... ég er loksins komin í frí og skellti mér til Boston að því tilefni.
Hér er langt frá því að vera vorstemning, eiginlega meiri hauststemning, því að hér er verið að slá kuldamet í maí mánuði síðan sautjánhundruðogsúrkál og ofan í það er smá rok og rigning líka. En ég er nú sannur Íslendingur og þekki mig vel í þessu veðri, læt mig bara hafa það og brosi breitt. Enda er heldur ekki annað hægt þegar maður er að fara á U2 tónleika.

Tónleikarnir eru á morgun og ég get ekki annað sagt en að ég sé bara alveg ótrúlega brjálæðislega rosalega spennt. Það voru aðrir U2 tónleikar hér í Boston í gær og við Rósa vinkona kíktum þar við til að skoða aðstæður og tékka hversu snemma við þurfum að vera mættar í röð.
Það stefnir í það að vera mætt kannski svona 2 tímum fyrr, ætti alveg að duga!

Annars er ég búin að afreka það að kaupa mér gönguskó hér í borg - svaka ánægð með kaupin og núna ætti ég að vera vel græjuð fyrir gönguferðina um Skælinga í sumar með Selmu. Ætlunin er að vígja skóna með því að skella sér á Esjuna þegar ég kem heim, er einhver memm í það?

Buller? Buller? Ferris?