mánudagur, mars 28, 2005

.. og letin heldur áfram!

Hvernig er hægt að sofa 13 tíma á sólarhring? ... og hvernig kem ég mér út úr þessu?
Ég er farin að taka þessu of hátíðlega að taka páskana rólega... this is too much... ég enda í þunglyndi ef ég held þessu áfram hehe.

Spurning um að fara eitthvað út og hressa sig við NÚNA.

Annars fór ég hinn árlega páskamat til múttu og pápa í gær. Öll fjölskyldan sat við eitt borð - 13 manns takk fyrir, við sáum það að það við erum komin í tóm vandræði ef einn fjölskyldumeðlimur bætist við.... jahh alla vega verður erfitt að sita öll við sama borð.

Ég fékk páskaegg! Alveg tilgangslaust þar sem ég borða ekki svoleiðis .. en það er skylda að fá málshátt í minni fjölskyldu, allt í lagi þó maður opni bara, taki málsháttinn úr og rétti svo hinum eggið til áts. Og málsháttur ársins var: "Hver finnst sín reiði réttsýn" .. eða eitthvað í þá áttina. Stefanía litla fékk málsháttinn: "Kemst þó hægt fari" ... yyyyyndislegt!

Hvaða málshætti fenguð þið?

laugardagur, mars 26, 2005

Páskar

Ég er aldeilis komin í páskafrí. Er búin að hafa það svo náðugt að ég er orðin þreytt á að hvíla mig.... held því samt áfram.

Fór í sund í bæði gær og í fyrradag, nett matarboð til GAM systur í gær (voða góður matur) og annars bara örfáir aðrir dagskrárliðir.

Það sem er fréttnæmt er að Elsa Þóra og Trausti Þór Noregsbúar voru að eignast dökkhærða DÓTTUR!! Voða mikið krútt ... og ég sem hélt þetta mundi verða ljóshærður strákur!!!! Svona finnur maður þetta svakalega mikið á sér. EN ég óska þeim INNILEGA til hamingju.... yyyyndislegt.

Á morgun er svo Páskadagur og ætlunin er að fá sér soðið egg og speltrúnnstykki í morgunmat (eins og flestir aðrir landsbúar.... NOT) og njóta þess fram í fingurgóma.

sunnudagur, mars 20, 2005

Meira djamm!

Þetta er nú meira djammið á manni... Á föstudaginn "þurfti" ég að fara á vinnudjamm með fólki sem ég hef ekki djammað áður (nema Slaugu) og þetta var nú bara svaka flott.

Byrjað kl. 18 á föstudaginn og kom heim kl. ca. 3
Fór í vinnu kl. 9-11:30 .. fjúff ... soldið erfitt.
Stákarnir í vinnunni voru þó ósköp skilningsríkir greyin (allt annað fólk en ég djammaði með kvöldið áður).

Annars er helgin bara búin að vera róleg.
Afrekaði þó að gera skattskýrsluna í dag á klst, djö.. er ég öflug!
Er búin að taka til líka svolítið og fara með bílinn í þvott enda ekki vanþörf á.
Fór í afmæli til Önnu Laufeyjar sætu systurdóttur minnar í dag.
Svo var annars bara unnið aðeins meira svo ég sé nú undirbúin fyrir þessa 7 fundi sem ég fer á á morgun.

Lifið heil, gúddbæ!

mánudagur, mars 14, 2005

Árshátíð og Akureyri

Árshátíð Símans var æði - ég skemmti mér geðveikt vel fram á morgun.
Ég gat loksins ákveðið mig og fór í pilsi og noa noa toppnum og var algjört megabeib .. þó ég segi sjálf frá.
Í svörtum fötum voru að spila og ég dansaði næstum af mér fæturna á stígvélum með hælum frá hulle! ... og svo talaði ég líka frá mér allt vit ... svona næstum :P
Endaði svo í þynnkuveseni allan sunnudaginn og tók því bara rólega. Fékk reyndar vin minn í mat sem var voða voða voða huggó.

Svo ég tali um fleira fréttnæmt þá skrapp ég til Akureyrar á fund áðan frá kl. 14-18, svolítið skondið að fara í svona "hraðsoðið" ferðalag! .... þar er snjór og alles!!! Þá er veðurfréttum lokið.
Gerði svo góðverk á bakaleiðinni í flugvélinni því að hún Marín litla, 3 ára, þurfti að fá einhvern til að sitja við hliðina á sér og ég lofaði Ömmu hennar að vera góð við hana.
Hún var svo góð allan tímann þessi elska, sagði varla orð og var bara sátt við að dúlla sér með Bratz veskið sitt og fá sér smarties annað veifið. Svo einfalt var það!

laugardagur, mars 12, 2005

Árshátíð í kvöld!

Jæja kæra fólk, nú er mín að fara á árshátíð í kvöld.
Það er ekki laust við að maður sé bara svolítið spenntur.
Það stefnir allt í skemmtilegt kvöld með Hollywood þema.
Er viss um að rauðir dreglar og glamúr og gliss eigi vel við mig ;)
Svo er það heilabrot dagsins:
Keypti mér ljósa hörbuxnadragt í NoReGi sem ég er geðveikt ánægð með.
En er með tvenns konar pælingu.

  1. Hvað gerir fröken gaggalill ef hún sullar á sig í ljósu dragtinni (sem er víst ekki svo óalgengt hjá undirritaðri)
  2. Keypti mér ferlega flotta (og svarta) skyrtu/mussu/kjól (æj veit ekkert almennilega hvað þetta er) í Noa Noa í gær sem ég get vel verið í við hörbuxur, eða svörtum buxum eða jafnvel svörtu stuttu pilsi. Langar smá að vera í pilsi allt í einu! hehe

Ehemm ... það stefnir allt í maraþon máterí á eftir!

miðvikudagur, mars 09, 2005

Ömmueðli

Er hægt að vera með ömmutilfinningar án þess að hafa nokkurn tíma verið mamma?
Alla vega .... þetta er um það bil fallegasta barn í heimi.
Og þá er það sagt!

(Birt með góðfúslegu leyfi Guðrúnar Rósu sætu)

Million dollar baby

Nei ég er ekki að fara að gefa milljón dollara ... ég fór bara á myndina.
Sunnudagur til sælu og þessi mynd var sko alveg þess virði að sjá.
Skil alveg að þessi mynd hafi skilað 4 óskurum (hvernig sem maður skrifar þetta).
Smá svona gráti gráti mynd.... en það er bara gaman.
Einhvern tíma verður maður að fá að grenja í þessu annars frábæra lífi.

föstudagur, mars 04, 2005

Idol í sjónvarpinu ...

... og ég er að setja Noregsmyndir á netið.
Ýmislegt gerst í vinnunni síðan ég kom heim.
Þetta var bara nokkuð brjáluð þriggja daga vinnuvika hehe.

Planið er að fara upp í bústað upp úr hádegi á morgun og slaka á með M&P, fara í pottinn mmmmm. Koma svo til baka á sunnudaginn og skella sér í bíó, dauðlangar að sjá "Million dollar baby". Hafið þið séð hana?

miðvikudagur, mars 02, 2005

Virkilega huggó

Ég er komin aftur á skerið eftir mjög vel heppnaða ferð í sæluríkið Norge.
Það var aldeilis notalegt þarna úti, ég slappaði af, borðaði góðan mat, slappaði af, verslaði, slappaði af, var túristi, slappaði af .. já mjög afslappandi fer sem sagt!

Varð svo fræg að sjá hinn fræga skíðastökkpall Holmenkollen og tók nokkrar túristamynir. Skoðaði líka Viglundsparken, fleiri myndir teknar þar.

Tók líka myndir af öllu liðinu sem þið fáið að sjá fljótlega. Þarf að vinna í því að koma myndunum á myndasíðuna mína við fyrsta tækifæri :)

Svo missti ég mig aðeins í H&M og fleirum búðum. Keypti mér minn fyrsta leddara (leðurjakka) og er ósköp kát með það! Júbbííí.

PS. U2 miðar í Boston eru í höfn ..... 26. maí.