Helgi!!!!
Hafið þið ekki þekkt einhvern Helga og sagt við hann: "Góða helgi Helgi!" ... ég þekki nokkra og þeir hata allir (margir alla vega) þegar þetta er sagt. Kannski hafa þeir heyrt þetta einum of oft á ævi sinni. Aaaaaaaaaaðeins of margir gallar á einum osti!
Annars er ég bara kát, er að ljúka vinnudeginum og ætla að skella mér í sund og svo í bíó í kvöld einhvern tíma á "Touching the Void" ... vona að mínar litlu sætu taugar þoli þá mynd. Hún er víst þrusugóð og sannsöguleg og ógnvænleg og rosaleg og raunveruleg og geðveik og eitthvað meira en ég held ég hætti hér með lýsingarorðin.
Mér var bent á að það hefðu ekki verið nógu margir valmöguleikar í "Er guð kona?"-spurningunni minni. Sumir myndu nefnilega segja að guð væri kærleikur... hmm eitthvað til að pæla í.
gaggalill
um allt og ekkert
föstudagur, apríl 30, 2004
fimmtudagur, apríl 29, 2004
and action!
Voðalega busyheit eru þetta, maður er bara alveg að gleyma sér í blogginu!
Mín vaknaði dúndurfersk í morgun, spratt á fætur, skellti í mig hafragrautnum og keyrði af stað upp á höfða til að spila skvass. Andstæðingurinn vann 2 leiki og ég bara 1 buhuuu. Djö... skal ég rústa henni næst. Gleymdi sokkum fór sokkalaus ofan í skóna sem var ekki girnilegt, brunaði heim í sokka og svo beint í vinnuna .... varð á að líta í spegil ... RAUÐHAUS! er rétt að fá bleikan lit núna.
Svo er spenna í kvöld..... bacheolor þáttur... ætli það sé ekki bara sá síðasti. Ætli ég grenji yfir þessu í kvöld. Guvuð ég vona ekki. Vil ekki vera svona! hehe
mánudagur, apríl 26, 2004
Róleg helgi
Mikið átti ég nú fína helgi, bara róleg og afslöppuð! Ekkert puð, enda var það alveg tekið út þarna á miðvikudaginn í síðustu viku.
Big news in the dating world of famous people ... Kornikova og Enrique ætla í hnapphelduna! .. og ég sem hélt að þau væru hætt saman. En mogginn lýgur ekki.
Svo er Björk að fara að gefa út disk þar sem ekki er spilað á nein hljóðfæri. Allir taktar og allt svoleiðis er gert með röddum Bjarkar og vina hennar... oh ég vildi að ?g hefði vitað þetta! Þá hefði ég hringt í hana og spurt hana hvort ég mætti vera "Dú Dú Dú dei dei dei" hljóðið.
miðvikudagur, apríl 21, 2004
Footloose
Það eru allir komnir í stemningu í vinnunni í dag því hér er "hreingerningardagur" og þá finnst öllum tilheyra að fara í búning! Deildin mín er með alveg rosa fínt eighties þema, allt mjög ýkt og skemmtilegt.
Til þess að undirbúa þetta fór ég með Önnu í Rauða Kross búðina til að sjá hvort að ég fengi einhver fín föt fyrir tilefnið. Keypti reyndar ekki neitt þar, en fékk mjög flott hláturskast. Við mátuðum frábæra Eríks Hauks kápu nefnilega .. það var ekki leiðinlegt .... hægt er að sjá mynd af Önnu í flíkinni á nýja mblogginu ;)
Svo er bara að skella Footloose í tækið og gera allt vitlaust! ... haldið þið að það verði ekki fjör?
þriðjudagur, apríl 20, 2004
Skómarkaður, sprengur og ófrjósemi
Fór í skómarkað í gær og ótrúlegt en satt fann ég bara ENGA skó sem mig langaði í. Undur og stórmerki alveg!
Allir í vinnunni eru að tala um sprengjur í dag og fótboltaáhugamennirnir hér eru komnir með áhyggjur af einhverjum leik milli Liverpool og Manchester því að fréttir segja að það muni einhverjir gæjar vera á leiknum sem ætla að sprengja sig í loft upp!!! Ég þoli ekki trúarofstæki ... og þá vitið þið það.
Var að lesa Moggann .. þar stendur að einhver kínverskur læknir telur að of mikið kynlíf valdi ófrjósemi. Hahahaha brill skondið! .... Ég hlýt að vera alveg sérstaklega frjó manneskja. Og nóg um það.
mánudagur, apríl 19, 2004
OC í tv-inu
Það eina sem er "fréttnæmt" í dag er að ég ætla að horfa á OC í kvöld. Ég byrjaði að horfa á það helv.... og nú er ekki aftur snúið :)
Ég fæ smá svona "Beverly Hills 90210" tilfinningu þegar ég horfi á þennan þátt .. sem er alls ekki slæm tilfinning :)
Ps. Það eru komnar myndir á nyja bloggið mitt ... Trjámynd með engum trjám og svo er hjólið mitt þarna og svona!
laugardagur, apríl 17, 2004
Frænkur
Ég á svo yndislega knúsulegar frænkur. Var í frænkuhitting í gærkvöldi, hrikalega gaman, nóg af knúsum og mikið spjall :) Við höldum að við séum systur sem voru aðskildar og settar til sitthvors bróðursins við fæðingu!!!! En alla vega ekkert sjónvarpsgrenj það kvöldið!!! hehe
Planið í dag er að fara upp í bústað með m&p og halda áfram við flísalögn og horfa á Gísla Martein og fleira með "the folks". Róleg helgi sem sagt :)
föstudagur, apríl 16, 2004
Bachelor grenj
Ég get svarið það ég grét yfir bachelor í gær. Hann átti í svo miklum vandræðum með að velja og þetta var eitthvað svo emotional og svo henti hann út spanjolagellunni. Og hún var svo mikil hetja þessi dúlla, sagði einhvern veginn allt rétt í limmónum í lokinn *snökt*
Að ég skuli láta svona sjónvarpsefni hafa áhrif á mig. Annars er ég nú bara glöð yfir því að það sé kominn föstudagur .... víííí. Ekki allir í stuði?
fimmtudagur, apríl 15, 2004
Pælingar dagsins
Ferlega er maður vanafastur. Þrátt fyrir að vilja að trén færu þá er þetta ferlega skrýtið! Samt jákvætt skrýtið! Það er t.d. bjartara í stofunni hjá mér og svona. Eeeeen það er eitt risatré eftir sem nágrönnum mínum í næstu húsum langar að losna við. Ég tók mig því til og fór að spjalla við þá nágranna mína í húsinu sem voru heima og gerði litla skoðanakönnun á hvort við ættum að fella síðasta tréð. Flestum virðist vera sama. Ljóst er að fólk er ekki að tengjast neinum sérstökum tilfinningaböndum við 15-20 metra tré.
Ég hjólaði góðan rúnt í gær á nýja frábæra hjólinu mínu. Komst að því að hnakkurinn er kannski eilítið harður, en samt sem áður algjör unun að hjóla á græjunni. Rassinn er reyndar smá aumur í dag en hann er hvort eð er ekki nýttur í neitt nema að sitja á honum þannig að það er ekki stór skaði skeður. Ég held ég láti það eftir mér að kaupa svona geldót til að setja á hnakkinn.
Ég er komin með nýtt mblogg því að ég skipti um símanúmer - sjá nánar á linknum hérna hægra megin. Þarna eru komnar myndir úr bústaðnum og væntanlegar eru myndir af hjólinu fræga og kannski myndir af garðinum án trjáa :P
Könnunin um hvort að fólk fíli eighties fötin er lokið. Einum þátttakanda finnst þau kúl en fimm fannst það ekki. En við erum örugglega öll búin að fá ógeð af þessari könnun þannig að ég sett nýja :)
miðvikudagur, apríl 14, 2004
Hjólabeib, hressleiki og risatré
Hæ hó alle sammen ... ég var að kaupa mér hjól ligga ligga lái. Er ekkert smá fersk og hlakka ekkert smá að fara að þeysa um á græjunni. Einhvern veginn kom þessi hugmynd í hausinn á mér um páskana ... svo sterk hugsun að ég bara framkvæmdi þetta! Hvort eð er búin að hugsa um þetta í heilt ár.
Svo var ég vakin af iðnaðarmanni tvo morgna í röð... ekki vegna þess að ég er gengin út ... heldur vegna þess að hann ætlar að vera svo vinalegur að höggva niður nokkur RISATRÉ í garðinum heima hjá mér. Sá er annars voða ferskur á morgnanna .. alveg: "Góðan og blessaðan daginn og velkomin á fætur" ... þarf að ná mér í svona ferskan mann by the way.
En það fyndna er að þetta skógarhögg er búið að standa til lengi, í rúmlega ár, og loksins er komið að því í dag. EN pælið í því í gærkvöldi dingluðu nágrannar mínir í næsta húsi heima hjá mér og spurðu mjög vandræðalega: " EHEMM hurrðu .. eruð þið ekkert að spá í að höggva þessi tré þarna í garðinum hjá ykkur???" ... ég gat nú aldeilis glatt þau með því að þetta væri nú bara allt að gerast! ... Stundum leysast hlutirnir bara 1-2-og-3 ... RAGGA REDDARI mætt á svæðið.
"NO TREES FOR YOU MY FRIENDS"
Eru ekki annars allir hressir? .... Mig langar alveg svakalega mikið að fá komment frá ykkur svona svo ég viti að einhver sé að lesa!!! :)
miðvikudagur, apríl 07, 2004
Páskar og kynþokki
Hæ hó ... ég er komin í páskafílinginn. Mig langar eiginlega í frí núna en hugga þó sjálfa mig við það að ég þarf þó bara að vinna þennan dag og svo er ég komin FRÍ.
Fór á Súfistann í gær og las slatta af sorpritum eins og Cosmopolitan og Hello, náði alveg að pirra mig yfir því hvað allt í þessum blöðum snýst um það að vera mjór og fallegur.
En þó var EIN grein sem var með mynd af konu í venjulegri stærð (stærð 14). Þessi grein fjallaði um könnun sem gekk út á það sýna mynd af konunni í nærfötum og í texta á myndinni stóð "I think I'm sexy, do you?". Svo var svaraði slatti af fólki þessari spurningu og niðurstaðan var sú að 66% af þeim sem svöruðu sögðu "YES".
EN það sem athygli mína vakti var að það var gerð önnur sambærileg könnun með sömu mynd en öðrum texta: "I think I'm fat, do you?". Niðurstaðan við þessu var að 55% sagði "YES".
Ég tek það fram að þetta var AMMMERÍSK könnun en þetta segir manni samt það að sjálfsöryggi er sexy...... Ekki satt?
þriðjudagur, apríl 06, 2004
Sól og sumaryl
Skapið mitt er betra þegar það er sól, það er bara þannig!
Vaknaði í morgun og hafði meiri löngun til að gera jógað mitt en oft áður.... jóga er líka betra í sól hehe.
Er að vona að þetta haldist eitthvað yfir páskana, en ekki miklar líkur á því skv. spánni, en þá er bara að safna sól í hjarta (mín ljóðræn í dag).
Er það ekki D-vítamín sem er í sólargeislum?
Smá pæling, hvernig væri að beisla D-vítamín sólargeilsanna og setja þær í geðlyf?
Og svo bara bjarga heiminum :)
sunnudagur, apríl 04, 2004
Svaka gaman í gær maður
Mætti í matarboð
Fékk fisk - mmmmmmm voða gott
Ýmsir drykkir í boði
Eternal Flame sungið í símakaraoke
Leigari tekinn niður í bæ
Thorvaldsen - með hjálp Ölgerðarinnar
Fullt af fólki
Mikið dansað
Labbitúr
Ölstofan
Labbi labbi
Syngja á laugarveginum með undirspili og alles
Meira labb
Leigari fundinn
Allt fyndið
Góða nótt
föstudagur, apríl 02, 2004
Náði þessu!
Jæja .. ekkert stress meir, get farið róleg inn í helgina ... náði að gera það sem ég ætlaði mér í dag :)
Svo ætla ég nú bara að snæða með vinkonu minni og fá að horfa á Am Idol heima hjá henni. Hef ekkert fylgst með þessari seríu, en who cares, þetta er alltaf ágætis skemmtun.
Ekkert stress! Bless!
Stress
Af hverju verð ég stundum stressuð? hmmmm ... hugsa það sé það yfirleitt vegna þess að ég er svo ákveðin í að standa við einhverja tímasetningu sem gæti svo alveg klikkað. Svoleiðis líður mér alla vega núna.
En hvað gerist ef ég klikka á einni tímasetningu og brýt gefin loforð? Kemur einhver og lemur mig? Kemur einhver og skammar mig? Rekur einhver mig? Eyðilegg ég helgina fyrir einhverjum? Neeeeeh ... ég veit .. þetta snýst um að gera sitt besta, heimurinn springur ekki í þúsund tætlur þó ég standi ekki við eina tímasetningu.
Og þetta var hugleiðing dagsins.
