fimmtudagur, desember 30, 2004

Gleðilega hátíð

Þetta eru búin að vera rosa fín jól maður :)
Rosa góður matur hjá múttu á aðfangadag og jóladag og svo eitt boð í viðbót á 2. í jólum. EN það þægilega við þetta allt saman var að boðin voru ekki fyrr en um sexleytið og þá náði maður að hafa það huggó á náttfötunum með bók í hendi fram eftir degi. Svona á þetta að vera.

Ég fékk 3 bækur í jólagjöf sem er persónulegt met: Bítlaávarpið, Fólkið í kjallaranum og bókina Women as lovers. Nú veit ég að sumir hugsa ... hvaða perri gaf henni bókina Women as lovers? Og hvaða bók er það nú?

En já þetta er nú ekki eins djúsí og maður heldur. Þetta er ein sú dýpsta bók sem ég hef lesið (er reyndar ekki alveg búin með hana). Þetta er sem sagt bók eftir austurríska konu sem fékk nobels verðlaun fyrir aðra bók. Þessi bók segir sem sagt frá tveimur konum og þeirra hugmyndir um ástina. Ég er enn hneiksluð yfir því hvað þær eru miklar "karlrembur" þ.e. líf þeirra beggja snýst um mennina sem þær elska að þær eigi enga framtíð án þeirra ..... en ég er farin að búast við því að bókin snúist upp í kvenrembu í lokin. Kemur alla vega í ljós! :D ... og by the way Rósa boston gella var "perrinn" sem gaf mér þessa bók.

Hinar bækurnar voru mjög fínar og mjög þægilegar lestrar!

Áramótin eru svo að fara að ganga í garð og ....surprise surprise hún gagga litla lill single gella ætlar í mat til mom and dad!!! Verð þar fram yfir miðnætti og svo kíki ég í teiti til Láru sætu.

Ekki er það nú slæmt.

fimmtudagur, desember 23, 2004

Ég og skata

Góðan daginn fólkens og gleðilegan Þorlák (borið fram Þoddlák - eins og afi minn sagði alltaf). Já nú fer senn að líða að jólum. Ég er mætt í vinnuna og sit hér AAAAALGJÖRLEGA GAAAAALEIN.... hvað er ég að spá? Fleiri ætla sér þó að mæta, en koma sjálfsagt ekki fyrr en upp úr kl. 9. En hvað sem því líður þá ætla ég að fara snemma heim í dag og hana nú!

Ég er ekki að fara snemma heim til þess að fara til mútter að borða skötu..... ONEI! My SKATING days are over!!! ... Ég er búin að reyna í mörg mörg ár að borða þessa blessuðu skötu. Mig langar í rauninni alveg rosalega að geta borðað þetta og finnst þetta sjálfsagt vera partur af því að vera orðin fullorðin. EN ég bara GET ÞETTA EKKI.

Ég, þessi matglaða manneskja, sem hefur næstum borðað allt sem að kjafti kemur í gegnum árin, get bara ekki kyngt þessu skötudóti, mér er það lífsómögulegt.

Þetta hefur kannski eitthvað með það að gera að foreldrar mínir kaupa alltaf kæstustu skötu sem þau finna, svo kæsta að þau tárast við að elda hana og horfa á hana. En alla vega ... í ár verður þetta ekki reynt, í ár ætla ég að fara með Rósu Boston gellu á uppáhaldsveitingastað niðrí í bæ og kíkja svo kannski smá á laugarveginn. Júbbííí .. ég hlakka til :)

Svo í lokin má ég til að benda ykkur á smá grein með pælingu um hvernig er að vera einhleypur um jólin.... algjör snilld! Klik her!

mánudagur, desember 20, 2004

Jólin koma

Tina Turner er í viðtækinu syngjandi rokkaðasta jólalag sem ég hef heyrt lengi. Yyyyyndislegt!

Helgin var frábær:
Tvær bíóferðir
Farið á kaffihús
Jólagjafakaup kláruð
Jólakortaskrif kláruð og kortin send
Gjöfunum pakkað inn
Tiltekt heima
Heimsókn til Láru
Jólasnyrtivörurnar keyptar fyrir dekurbarnið Göggulill

.... Er sem sagt komin í ultimate jólafíling ... og núna er lagið Jingle Bells í viðtækinu :)

fimmtudagur, desember 16, 2004

Happy & Boring

Það er stundum svo gaman að experimenta. Prófaði að gera www.happy.com á netinu og fékk svona líka frábærlega sniðuga síðu: Happy Harry's Drugstore í Bandaríkjunum..... get varla sagt að ég hafi búist við að fá apótek!!!! Tengi það ekki beint við hamingju.... en sumir mundu kannski gera það!!!

Og víst ég var að þessu minnti þetta mig á þegar ég var enn í námi og prófaði að fara á síðuna www.boring.com. Hlýt að hafa verið í pirruðu og þreyttu skapi þegar ég prófaði, en gladdist mjög þar sem að þessi síða reyndist vera heimasíða fyrirtækis í eigu hr. Dean Boring.

OK ... nr. 1: Greyið maðurinn að hafa þetta nafn ....og nr. 2: hann eiginlega lítur líka út fyrir að vera smá boring ... en við skulum nú ekki alhæfa eða vera með hroka!!!

Þessi síða insperaði mig og vin minn svo að við ákváðum að gera smá grín. Við höfðum nefnilega verið að skoða síðuna www.debbiemumm.com sem er afar amerísk country föndur síða og hún Debbie er svo innilega ammmmerísk með stórt hár og allt að við fengum (ég veit ekki hvaðan) þá hugmynd að réttast væri að skrifa Debbie litlu sætu ástarbréf frá honum háttvirta hr. Boring hjá Boring Business Systems.

Við hlógum allan tímann á meðan og þar sem við vorum/erum smá nördar græjuðum við smá forrit sem lét þetta líta út eins og hann hafi virkilega sent tölvupóst til hennar frá sínu eigin netfangi.

Nú er bara spurning .... ætli Hr. Boring og frú Mumm séu vinir í dag?

miðvikudagur, desember 15, 2004

SMS í talsíma

Ef ykkur skyldi langa að vita hvað maður er að taka þátt í í vinnunni þá er hér svona líka fín grein um það í Mogganum. GJÖSSOVEL :)

Nýr skvassspaði!

Ég gerðist jólasveinn og gaf sjálfri mér jólagjöf aðeins fyrir jól. Já já ... mikið rétt ... ég fékk mér skvassspaða. Þetta er sko GULA HÆTTAN!!! Já hann er fagurgulur (eins og minn fyrri spaði) ... en þessi er sko KEPPNIS! .. Græjan er 140 gr, létt eins og fiður!!!

Mikið óskaplega er ég ánægð með þessa jólagjöf mína.... ekki er sömu sögu að segja um skvassvinkonu mína, hún er byrjuð að klappa sínum spaða til uppörvunar thíhí.

þriðjudagur, desember 14, 2004

Lasleiki og jólaskap

Jæja sæta fólk. Nú er mín aldeilis að komast í jólastuð.

Ég er líka öll að braggast eftir að hafa átt ansi ópródúktíva helgi þar sem ég einbeitti mér að því að vera sem mest í rúminu vegna gullfoss og geysis. Ekki var mikið gert í jólastússi þá helgina en ég fékk jólasveininn í 3 sek heimsókn. Reyndar var það hann pabbi minn sem kíkti örskotstund við til að gefa mér einn yfirfullan plastpoka af gosi, eplum (stemmandi að sögn múttu), banönum, eplasafa, poppi, 1944 máltíð og eina soyamjólk.... EKKI slæmur jólasveinn það.

Þetta reyndist svo vera það sem í daglegu máli kallast sólarhringspestin.

En mikið er ég nú glöð að henni er lokið og ég get bara haldið áfram að byggja upp jólaskapið. Undirbúningurinn er alveg kominn á hreint í hausnum á mér (því ég hafði svo mikinn tíma til að hugsa um helgina). Ég á bara eftir að:

Skrifa jólakortin
Kaupa örfáar jólagjafir
Þrífa íbúðina hátt og lágt
Skreyta smá meira
Pakka inn

... hey ekkert svo mikið ... hlýt að ná þessu!

miðvikudagur, desember 08, 2004

Bachelorette

Nei ég er ekki bachelorette ... heldur er þátturinn bachelorette að byrja í kvöld á skjá einum.
Spurning hvort maður kíki ekki á þetta í kvöld! hehe

Var að skoða hvort það væri eitthvað skemmtó í bíó en sá einhvern veginn ekkert sem mig langar að sjá enda búin að sjá hana Bridget vinkonu mína! Vitið þið um góða mynd?

sunnudagur, desember 05, 2004

Gúllassúpa!

Þetta var aldeilis fínn dagur í dag:

Vaknaði
Fékk mér morgunmat
Vann smá
Þvoði þvott
Fékk vinkonu mína í heimsókn
Borðaði hádegismat
Vann smá meira
Fór í Hagkaup
Fór í heimsókn til Sigrúnar frænku og litla kúts
Kom heim
Stormsveipaðist um íbúðina og eldaði gúllassúpu
Mamma og pabbi komu í mat
Horfðum á fréttir og blöðruðum

.... og nú er bara komið að því að glápa á kassann og fara svo að lúlla í hausinn á mér!

fimmtudagur, desember 02, 2004

Jólahlaðborð o.fl.

Nú er komið að því að hún gagga litla lill fari á jólahlaðborð ársins 2004. Að þessu sinni verður farið á Argentínu og er mökum er leyft að koma með. Þar sem ég á ekki maka verð ég bara að BORÐA sjálf fyrir allan peninginn ..... hahahahaha ... RÆT!

En alla vega þetta verður örugglega siðmenntað og skemmtilegt. Og svo er hið árlega jólaglögg Símans á morgun þannig að það er nóg að gera hjá minni.

Svo er náttúrulega planið að fara í jólaskreytingar og kannski jólagjafainnkaup um helgina vííí .. jóla hvað?

miðvikudagur, desember 01, 2004

Fullveldisdagurinn 1. desember

Þessi dagur hefur alltaf sérstaka þýðingu fyrir mér. Ekki beint af því að þetta er fullveldisdagurinn heldur að foreldrar mínir eiga BÁÐIR afmæli í dag.

1. des markaði alltaf upphafið af jólum, mamma og pabbi skreyttu smá húsið, fengu gesti í heimsókn og fengu fullt af pökkum. Jólastrengurinn var líka alltaf settur upp á þessum degi.

.... og þegar ég var yngri og í skóla var líka gefið frí á þessum degi :)

Til hamingju mútta og pápi ... ef þið eruð að lesa þetta!