Ferðalög
Ég er á leið í ferðalag, ligga ligga lái. Réttara sagt ferðalög!!! Ég fer á morgun norður (hugsanlega í Ásbyrgi) með Rósu vinkonu sem býr í Boston og er í heimsókn. Planið er að fá Ísland í æð, kíkja á ferðabækur og læra eitthvað á þessu og svo auðvitað hafa bara gaman af lífinu og tilverunni. Ég reikna með að koma til baka á föstudaginn og þá fer ég örugglega beint í Skorradalinn að hjálpa mömmu og pabba í bústaðnum um helgina. SVO gæti alveg eins verið að ég þurfi að skreppa smá til Danmerkur út af vinnunni í fáeina daga í næstu viku. En þessu er ekki lokið, aðal tjaldútilega sumarsins er helgina eftir það - Þórsmörkin með böns af liði. Djí ég er bara frekar busy lady ... en gaman gaman.
gaggalill
um allt og ekkert
þriðjudagur, júní 24, 2003
sunnudagur, júní 22, 2003
Hissa!!!
Ég fór í gær í sakleysi mínu í tvöfalt þrítugsafmæli til hennar Oddbjargar vinkonu minnar og Inga mannsins hennar. Það var gott veður, mikil stemning í fólki, partýtjald í garðinum og allt flæðandi í veigum og góðum mat. Skömmu eftir að geymið byrjaði var Oddbjörg komin í ljósan kjól og Ingi í íslensk jakkaföt og PRESTUR í fylgd með þeim. Váááá - Gifting! Þetta kom okkur vinkonunum svo skemmtilega á óvart að svipurinn á okkur var örugglega mjög skrýtin. Þetta var með fallegri brúðkaupum sem ég hef verið viðstödd og allir veislugestir brostu svo mikið að fólki var farið verkja í kinnarnar. ÆÐI!
föstudagur, júní 20, 2003
Ég er frábær!
Ég var að lesa smá tölvupóst sem Brian Tracy spammaði á mig og setning dagsins var bara nokkuð góð:
"Believe in yourself! Have faith in your abilities! Without a humble but reasonable confidence in your own powers you cannot be successful or happy." – Norman Vincent Peale
Muna þetta!
miðvikudagur, júní 18, 2003
Jafnrétti
Í dag er 19. júní og þess vegna ætla ég að hafa bleikan bakgrunn til hátíðabrigða.
Ég hef tekið eftir því að orðið feminismi fer mun verr í fólk en jafnrétti, af hverju ætli það sé? Af hverju sér fólk (bæði konur og karlar) alltaf fyrir sér feminíska manneskju sem groddaralega, órakaða, stuttklippta og grimma konu sem klæðist ekki brjóstahaldara? Fyrir mér er stuðningur við feminisma einnig að stuðningur við jafnrétti og hver vill ekki jafnrétti? Hver vill ekki bæta stöðu kvenna á vinnumarkaði, útrýma kynbundum launamun og auka hlut kvenna í stjórnun auðlinda og fjármagns? Hvað er fólk eiginlega hrætt við? Já ég bara spyr! :o)
Apaskapur
Máltæki dagsins: "Margur verður af aurum api"
Þvílíkur sannleikur!!! .... ég vona að ég verði aldrei api, þó að það gæti verið mjög þægilegt að hafa svona mikið hár og ef maður vill vera górilla þá getur maður bara sett í sig permó, eeeeeeeen nei takk!
Hey já !
Ég skora alla á að taka þátt í gerð íslensks talgreinis ........ skráning á www.tungutaekni.is
Þvílíkur lærdómur
Jæja fólkens... ég er enn að læra á þetta bloggdóterí, er að dúlla mér smá í útliti síðunnar og svona :)
