Næsta ferð - Noregur!
Jæja .... þá er mín barasta búin að kaupa sér ferð til Osló!
Ætlunin er að heimsækja vinkonur mínar, versla smá í H&M og slappa af og hafa það gott í 5 daga. Fer þangað síðustu helgina í febrúar, þannig að nú get ég bara farið að telja niður dagana :)
Júhúúú!!!
Vilja einhverjr fleiri koma með?
Ég var að panta miða og það eru ágætis netsmellir í gangi fyrir 22 þús til Osló núna ... Lára, Þórkatla, Begga J og Begga C .... are you game?
gaggalill
um allt og ekkert
föstudagur, janúar 28, 2005
sunnudagur, janúar 23, 2005
föstudagur, janúar 21, 2005
Bowling
Var að enda við að ræða við yfirmann minn í vinnunni hvað við ættum að kalla bowlingliðið okkar..... vorum ekki alveg að geta ákveðið okkur hvort það ætti að heita "Brother Louis and sister Sledge" eða "Kilimanjaro" .... svolítið ólíkt sko!
Við erum sem sagt að fara að taka þátt í Bowlingmóti starfsmanna Símans og ætlum að vera 5 eða 6 saman í liði og eigum það öll sameiginlegt að vera gríðarlega léleg.
Við eigum þó séns, því að ef við æfum okkur GEÐVEIKT þangað til mótið verður um miðjan febrúar, gætum við orðið rosa góðir bowlarar! ... ehemm .. ræt ;)
föstudagur, janúar 14, 2005
Hvaða hvaða ekkert bloggað hérna!
Hugmyndaleysið er að drepa mig.
Hef bara ekkert að segja.
Er bara að vinna.
Helgin verður samt fín.
MAC námskeið og 30 ára afmæli.
Jíhaaa.
sunnudagur, janúar 09, 2005
Alfie
Sá bíómyndina Alfie í gærkvöldi, ferlega skemmtileg og endaði ekki eins amerískt og ég bjóst við.
Aðalleikarinn Jude Law er ekkert eðlilega myndarlegur í þessari mynd. Svaka HÖNK!
Annars er nú bara alltaf gaman að fara í bíó. Spurning hvort mér takist að draga hana Láru vinkonu mína með í bíó á þessu ári ? (smá einkahúmor) hehe
laugardagur, janúar 08, 2005
Prumpulagið
... já það lag varð fyrir valinu í keppninni um leiðinlegast lagið og lenti í öðru sæti. Ekki slæmur árángur það!
Lagið sem vann var hræðilegt, Dr. Alban - Hello Africa! VANGEFIÐ fyndið og ógeðslega leiðinlegt. En þetta var hin mesta skemmtun. Sum lögin voru hreinlega skemmtileg, en fólk er bara með svo mismunandi smekk og á svo mismunandi minningar tengdar svona lögum!
Mæli sko með þessum leik sem partýleik, þetta kom ÖLLUM í stemmningu. Ungum sem öldnum, konum sem körlum, háum sem lágum, fýldum sem glöðum, söddum sem svöngum, edrú sem fullum .... æj nú hætti ég!
þriðjudagur, janúar 04, 2005
Ógeðslega leiðinleg lög
Abba ... ABBA gold platan eins og hún leggur sig
Rick Ashley ... never gonna give you up
Bjartmar ... súrmjólk í hádeginu og cheerios á kvöldin
Anna Björk ... sjúbbídú
Leoncie ... Ást á pöbbnum
Shaggy ... there's a rat in the kichen what ammma gonna do
Herbert Guðmunds ... svaraðu (kallinu)
Rod Stewart ... baby Jane
Já nú spyrja sumir sig kannski af hverju í ósköpunum þessi upptalning og neikvæðni.
Þetta er ósköp einfallt, ég er að leita að því lagi sem mér þykir leiðinlegast í heimi..... og gæti þegið einhverja hjálp. Eftir töluverða pælingu og samtal við hana Láru er ég komin með gott úrval (og töluvert meira en hér er upptalið). En ég þarf að finna EITT lag sem er ultimately LEIÐÓ og spila það í vinnupartýi á föstudaginn og skýra út af hverju mér finnst það leiðinlegt.
Endilega komið með vitrænar tillögur í kommentin :) ... og þið þarna laumublogglesarar endilega látið heyra í ykkur!
mánudagur, janúar 03, 2005
Annáll og hristihaus
Ja hérna, ég hef tekið eftir því að sumir af bloggvinum mínum hafa verið að gera eins konar annál fyrir síðasta ár. Ég bara man bara ekkert hvað ég gerði.... er ég elliær?
Ég man ferðalögin:
Ráðstefna, Cannes, France - feb 2004
Brúðkaup, Sönderborg, Danmark - maí 2004
Sumarfrí, Chania, Krít - júlí 2004
Heimsókn/ráðstefna, Boston - NY, USA - okt 2004
Ég man að ég vann slatta mikið.
Ég man að ég fór slatta mikið í bústað foreldra minna í Skorradal.
Ég flutti ekki, ég eignaðist ekki kærasta eða börn, breytti ekki miklu heima hjá mér.
Rólegt og gott ár held ég bara .... eða er ég elliær? hehe
En hvað finnst ykkur að við tökum okkur öll á og látum taka svona hrisstimyndir af okkur???
Held það væri verulega gaman að eiga svona hrisstimynd af öllum vinum sínum :)
laugardagur, janúar 01, 2005
Nýtt ár
Júbbííí!
Þá er árið 2005 byrjað.
Byrjaði með pompi og prakt heima hjá mínum elskulegu foreldrum.
Pottþéttur matur.
Skemmtilegt fólk.
Skemmtilegt skaup.
Gott veður.
Rosa sprengjur.
Skálað í kampavíni.
Ostar og flottheit.
Brunað yfir til Láru sætu.
Meiri ostar og flottheit.
Skemmtilegt fólk.
Rauðvín og Caprína.
Umræða um kalkúnasprautu og önnur hjálpartæki.
Hlátur fram á morgun.
Er hægt að hafa það betra?
Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla :)
