miðvikudagur, júní 30, 2004

Missti mig!

CWINDOWSDesktopPowerRangeres.jpg
Power Rangers Movie!


What movie Do you Belong in?(many different outcomes!)
brought to you by Quizilla

Fyndnar kanínur

kiss my ass2

congratulations. you are the kiss my ass happy
bunny. You don't care about anyone or anything.
You must be so proud


which happy bunny are you?
brought to you by Quizilla



Flottir verndarenglar


Fór að gamni að skoða hvað netið hefði að segja um verndarengla og fann þessa mynd! Hún er sem sagt eftir listamanninn Alfred Degens - fullt af kúl myndum :D

Sjúk

Hæ ... ég heiti Ragnheiður og ég er sjúk. Fór á vigt í morgun og stóð í stað, fannst það klikkað af því að mér fannst einhvern veginn ég hafa grennst síðan fyrir mánuði. Fór þá að pæla af hverju þetta gæti verið og fór að kenna sundbolnum mínum um. Já ég var í sundi og sundbolurinn var blautur, svo er hann nýr líka og úr svona þungu efni sem dregur svaka mikið vatn í sig .... örugglega 1 kg eða eikkva!... er viss um að það sé honum að kenna! ER SVO SJÚK!

Já gamla góða útlitsþráhyggjan er að trufla mig þessa dagana, enda er ég búin að vera óvenju mikið í mátunarklefum í kringlunni og smáró og það virkar alltaf rosa óflatterandi fyrir mann ... af hverju var ég að máta öll þessi "sumarföt" .. ég á nóg af þessu dóti ... SEM PASSAR! En jæja verndarenglarnir mínir hljóta að hjálpa mér í dag og fljúga örugglega fljótlega burt með allar þessar neikvæðu hugmyndir um sjálfa mig.

þriðjudagur, júní 29, 2004

Nýtt útlit

Jæja .. þá er ég komin í sumarútlitið hér á síðunni.
Endilega látið mig vita ef þið viljið að ég setji link á ykkur frá þessari síðu... finnst þetta eitthvað svo fátæklegt!

mánudagur, júní 28, 2004

Pæling dagsins

Geysp! ... bara ein vika eftir í vinnu og ég hef grun um að ég verði hálf óvirk. Ætla þó að reyna að klára hitt og þetta áður en ég fer róleg í frí ;)

Er svekkt yfir því að geta ekki mbloggað frá Krít .. en þá verður bara stafræna myndavélin bara tekin með, hitt er bara meira "spontant"!

Er enn að spá og spekúlera í þessu Þórsmarkardæmi - gæti verið að þetta sé í síðasta sinn sem ferðin verður með þessu móti þar sem vinafólk mitt sem heldur þessu yfirleitt uppi er að fara að flytja til Noregs .. búhúúú. En hvað sem því líður þá ætla ég að kanna veðurspána og láta hana ráða! ;)

föstudagur, júní 25, 2004

Fyndnasta síða ever!

Jeddúddamía .....ég var að frétta af heimasíðu sem ég bara VERÐ að deila með ykkur. Mestu HNAKKAR landsins hafa safnast saman í einn hóp og eru mjög stoltir af því. Vil sérstaklega benda á leiðbeiningar um hvernig maður nær í meira TAN og orðabókina þeirra.

Er annars bara að DEYJA úr tilhlökkun því nú eru bara 5 vinnudagar eftir og KRÍT here I come! ... en ein spurning: Á ég að fara til Þórsmerkur helgina áður en ég fer út? Er ekki svolítið mikið að fara í tjaldútilegu og svo beint á mánudegi til útlanda???

miðvikudagur, júní 16, 2004

KSM

Jamm .. varð að skrifa smá meir. Þetta er sem sagt íþróttadagur í dag. Fólk talar ekki um annað en fótbolta þessa dagana og ýmsir rauðvínspottar komnir í gang og svona.

En í mötuneytinu í vinnunni í dag var talað um að stofna félagið KSM .. sem sagt Krullulið SímaManna. Allt sem við þurfum er 1-2 sópar, þungur steinn og 1 sleipur skór á mann. "Mamma ... hvar eru gúmmítútturnar?" hehehe

Kúl að mæta í svoleiðis múnderingu niður á skautasvellið í laugardalnum.

Skvass

Ég er búin að vera að spila skvass með vinkonu minni úr vinnunni, alveg rosalega gaman nema hún hefur alltaf verið aðeins betri en ég!
Það verður að viðurkennast að það hefur verið mikið bögg. Svo gerðist það hún slasaði sig á kálfanum á mánudaginn í miðjum skvass tíma akkúrat þegar ég var að vinna!!!

En hún lét sig hafa það að mæta í dag til að liðka kálfann og svona og það fór 2-2 .. hmmm jafntefli og hún hálf slösuð. Djö.. skal ég rústa henni næst, það verður sko EKKERT tekið tillit til meiðsla :Þ

Svo er bara 17. júní á morgun og ég ekki með nein plön nema sleikja sólina.

mánudagur, júní 14, 2004

Hvert fór sumarið?

Nú er bara komið haust á Fróni.
10 stiga hiti og rigning ... frussumsvei!

Sem betur fer er ég að fara hingað í sumar að sleikja sólina!
Þarna er þetta fína veður núna.

fimmtudagur, júní 10, 2004

Sólarfrí

Í dag er svo gott veður að mér finnst það ætti að vera LOKAÐ VEGNA VEÐURS! Mig langar að hanga í sundi og úti í sólinni á einhverju kaffihúsi með kaldan svaladrykk í hönd.

En ef þið eruð inni að húka eins og ég og ykkur leiðist þá er svo sem hægt að skoða þetta til að stytta sér stundir.

þriðjudagur, júní 08, 2004

Bull og vitleysa

Það er til bær með mjög svo vafasömu nafni. Það má örugglega grínast endalaust með þetta nafn. Thíhí.

mánudagur, júní 07, 2004

Þessi líka fína helgi!

Talaði við gríðarlega marga um helgina ... mjög social helgi (miðað við þá síðustu).
Hjólaði í barnaafmæli sem var bara alls ekki svo slæmt, alls ekki svo mikið af öskrandi börnum. Þessi börn voru bara óvenju sæt.
Var voða mikið að eyða peningum á ýmsum kaffihúsum með ýmsum vinum.
Fór í mat til frænku minnar, grillaður kjúlli í góða veðrinu í gær.
Bíð spennt eftir komu foreldra minna frá USA/Kanada .. er að vona að þau ofdekri kröfuharða litla barnið sitt með alla vega einni gjöf :)

föstudagur, júní 04, 2004

Hálf þunn

.. en þó skárri en margir aðrir hér í vinnunni. Við vorum nefnilega að kveðja einn starfsmann á sviðinu með stæl í gær. Kom mér sem sagt heim kl. 1 og var svo fersk í morgun að ég hjólaði í vinnuna. Get samt alveg lofað ykkur að ég er ekki eins fersk akkúrat núna.

Ætla að drífa mig í sund með annarri þunnri manneskju :) Adios amigos ... como estas? ... wie viel Uhr ist es? Ich habe en Kugelschrieber gebiessen, ja ja!

fimmtudagur, júní 03, 2004

Blogg

Vissuð þið að það er vel hægt að eyða heilu kvöldi í að lesa blogg? Það er svo mikið af fyndnu og skrýtnu og venjulegu fólki þarna úti... og það fólk á vini sem er enn fyndnara, skrýtnara eða venjulegra og þetta er allt linkað fram og tilbaka. Toggi pop er reyndar sá sem mér hefur hingað til fundist fyndnastur ... slysasögurnar hans eru alveg JEMINN. Svo er hún Anna mín alveg snilld! .. hef oft hlegið upphátt þegar ég les hennar blogg sem kemur svo mjög asnalega út í vinnunni ... en who cares :D

Annars er ég nú bara í stuði í dag.. bara ekki í stuði til að blogga, meira til að vinna. Later!

þriðjudagur, júní 01, 2004

Fjúff

Ég er búin að vera ekkert SMÁ dugleg um helgina. Dúllaði mér í garðinum, plantaði sumarblómum, þreif glugga, sópaði svalirnar og tröppurnar, þreif eldhúsið að mestu leyti, fór í sund, flokkaði flöskur til að fara með í endurvinnsluna og ALLT.

Svo er planið að fara í endurvinnsluna og kaupa mér stóla við borðstofuborðið mitt eftir vinnu. Það verður nú gaman :) .. verst að ég held maður fái ekkert svakalega mikið fyrir þessar blessuðu flöskur. En ég er þá alla vega umhverfisvæn í dag og því fylgir mikil vellíðan hehehe.

Og jeminn .. eruð þið búnar að sjá lilluna hennar Láru vinkonu - hversu sætur getur eitt barn eiginlega orðið!