þriðjudagur, ágúst 26, 2003

Jæja - komin aftur!

Ég er komin heim frá Rimini "brún og sæt" og alveg svakalega úthvíld. Þetta var alveg frábær ferð, mikil sól, mikill hiti, góður matur, góður félagsskapur, góðir drykkir, gott rauðvín, gott vatn með bragði, fallegt fólk, ekki eins fallegt fólk, frábær strönd, heit Flórensborg, flottar Feneyjar, kúl San Marino og svona mætti lengi telja.

Á meðan tókuð þið, lesendur góðir, þátt í grænmetiskönnuninni og það lítur út fyrir að paprikkan hafi unnið. Ætli Félag Garðyrkjubænda viti þetta? Ég hefði getað veðjað að tómaturinn mundi vinna en eins gott að ég gerði það ekki. En jæja víst að paprikkan vann er ég að spá í að hafa einhvern paprikkurétt í næsta saumó ......hehe....... eða eitthvað!