Bara!
Þetta var hin besta helgi barasta. Systir mín kom frá Egilsstöðum og ég var heilmikið að dúllast með henni í gær, fórum m.a. upp í bústað til að fara í pottinn og hafa það gott.
Skellti mér svo í skvassið í morgun og hlífði fótnum, held þetta sé bara allt að koma núna. Gott að skvassfélaginn var enn smá þunnur frá því um helgina ... þannig að keppnisskapið var ekkert að fara með okkur í þetta sinn.
Monday monday .... lalalaaaaalaaaaaa
gaggalill
um allt og ekkert
mánudagur, ágúst 30, 2004
föstudagur, ágúst 27, 2004
Meiri vikan!
Er búin að vinna alltof mikið þessa viku og ég er bara gömul ... get svo svarið það, er búin á því í dag og þurfti að gera allt mun betra með því að togna aftur í morgun, ég sem var orðin svo góð í fætinum.
Hefði heldur átt að hlusta á Oddbjörgu sérfræðing og hennar RICE (rest, ice, compression, elevation) .... veit bara ekki hvar ég á að finna lyftu :P hehehe
Nú verður sem sagt ekki farið í skvasskeppni á morgun, enda var henni frestað þar til síðar :)
Góða helgi allir, ég ætla að hafa það skemmtilegt... hvernig sem ég fer að því ;)
mánudagur, ágúst 23, 2004
Tognuð!
Fór í skvass í morgun og var aðeins of ákveðin í að rústa makkernum og það endaði bara í vitleysu. TOGN í kálfa! ááái. Var svo á þönum í allan dag í vinnunni og langt fram á kvöld og kálfinn ekkert að vilja vera almennilega samvinnuþýður.
Fyndið... ég spurði alla sportistana í vinnunni ráða við svona kálfatognun og viti menn ég fékk bara öll ráð í bókinni: Hvíla fótinn, halda bara áfram að æfa og djöflast á honum, setja heitt á vöðvann, setja kalt á vöðvann, fara í teygjusokk, teyja vel á fætinum ... og eitthvað fleira! Beið bara eftir að fá að heyra "láttu mömmu kyssa á báttið og setja svo plástur" ..... en sem sagt, fólk veit ekkert um það hvað virkar .. eða kannski virkar þetta allt!!!
föstudagur, ágúst 13, 2004
Matarklúbbur
Var í matarklúbbi í gær og við stelpurnar gerðum smá glens í einum matarklúbbsmeðlimnum því hún er að fara að gifta sig í september. Sem sagt: Sól, góður matur, grín og glens m/karaoke o.fl.
fimmtudagur, ágúst 12, 2004
jesoaldeilishissa!
Eins og flestir Íslendingar er ég voða hissa yfir þessu bliðskaparveðri. Það verður að viðurkennast að ég er ekkert spes starfsmaður á meðan þessu stendur en ég mæti og þó og reyni mitt besta .... þar til að ég gefst upp (eins og í gær kl. 15:30) og sest upp í bíl og keyri þar til að ég er komin upp í Skorradal til foreldrana sem eru orðin svo kolsvört að sú staðreynd að ég hafi fengið ógisssslega mikinn lit á Krít hefur bara EKKERT að segja í samanburði við þau. Lét eins og ekkert væri og fór bara í pottinn og montaði mig yfir því að ég væri brúnari en þau á bakinu (eini staðurinn sem ég gat fundið). Smá pathetic ... en gerir ekkert til!
Hitametið í Rvk var slegið í gær: 24,8 gráður celsíus á opinberum mælum Veðurstofu Íslands, var þó heitara víðsvegar um landið. EN ég er komin aftur í vinnuna, 20 gráður á mælinum þegar ég vaknaði kl. 7 ..... Æ KAN DÓ IT! ... koma svo!
þriðjudagur, ágúst 10, 2004
Icelandic HEATWAVE
Ja hérna hér ..... maður vaknar skoðar hitamælinn og búbbsí 23 gráður celsíus kl. 8 .... maður gæti haldið að ég sé að lýsa veru minni á Krít en nei svo er ekki! Ísland er á suðupunkti og ég að vinna..... nokkuð útséð að ég taki langan lunch í dag og hana nú! :D
Ég ætla svoooooooooo að eiga góðan dag í dag! Vona að þið hin gerið það líka.
föstudagur, ágúst 06, 2004
Nudddagur (flott orð) !
Í dag ætla ég að prófa svæðanudd í fyrsta sinn á ævinni. Hlakka til að vita hvernig það virkar á minn fagra líkama. Hefur einhver lesandi minn hér (ef einhver er) prófað svoleiðis? Er einhver með góða eða slæma reynslu af þessu? Endilega deilið með mér reynslusögum... það er svo gaman að fá komment frá ykkur elsku krúttfólk.
Annars ætla ég beint úr svæðanuddinu í bústaðinn og njóta þess að fá mömmu(pabba)eldaðan mat og að hoppa svo í nýja pottinn sem er með alls konar nuddstútum og dóti. Ég verð barasta alveg fullnudduð eftir þennan dag!
Góða helgi alle sammen :D
miðvikudagur, ágúst 04, 2004
Vinnan
Jæja .. þá er maður byrjaður að vinna aftur. Þetta er bara voða stuð, er hrikalega vel úthvíld og tilbúin í slaginn enda sé ég fram á alveg klikkaðslega geðveikt haust... en það er náttúrulega bara fjör.
Svo er verið að senda mig í 4 daga útlegð til NY þann 11. september!!!! Frekar spes, en ætli það sé ekki hvort eð er öruggasti dagurinn til að ferðast á ef maður er á annað borð að ferðast til USA. Ég ætla að nýta ferðina og vippa mér til Boston að hitta Rósu vinkonu og vera 3-4 daga hjá henni. *Hlakki til*.
En svo kemur spurning sem ég verð eiginlega að fá viturleg svör við. HVAR er best að versla í NY/Boston? ... Victoria's secret? GAP? Banana republic? Nike? Puma? ... Hjálp? ... ehemm .. er nokkuð H&M þarna?
þriðjudagur, ágúst 03, 2004
Frábært!
Þjóðhátíð í Eyjum var alveg brill.... Ego var baaaaaara kúl og hinar hljómsveitirnar stóðu sig með prýði (skipti mér þó lítið af Mínus enda nóg annað um að velja).
Var mjög þakklát fyrir að fá gistingu í heimahúsi, algjör lúxus að komast í almennilega sturtu og undir góða sæng. Þetta var bara næstum eins og að fara helgarferð til útlanda með góðu djammi.
Varð svo veðurteppt í gærkvöldi í nokkra tíma og þegar við vorum að kanna stöðuna og tékka okkur inn á flugvellinum, bað örvæntingarfullur faðir okkur um það hvort við værum til í að sitja við hliðina á 8 ára dóttur sinni til þess að hún fengi "sessunaut með fulle fem". Það var ekkert nema sjálfsagt og undirrituð tók að sér sessunautshlutverkið. Þegar í vélina var komið byrjaði stelpan að spjalla og spjallið varði allt flugið (30 mín).
Pældu í því 30 mín nonstop!!! En það var ekki eins og hún væri eitthvað leiðinleg blessað barnið, hún sagði mér allt milli himins og jarðar, ég er t.d. fróðari um skóstærð stjúpmóður hennar, að mamma hennar hafi verið í námi á bifröst og sé að leita sér að kærasta, að hún sjálf hafi náð sér í símahúfu úr ruslinu á bekkjabíl af því að henni fannst hún svo flott og að ef maður sigldi of langt mundi maður sigla fram af jörðunni!
Hún kom líka með nokkrar gáfulegar spurningar eins og: Af hverju kemst flugvélin svona hratt?Af hverju notar maður gleraugu? Áttu mann? Vinnur þú hjá Símanum? Ertu í Símabúðinni? Varstu að vinna á þjóðhátíðinni? ...... sem gefur að skilja þurfti ég ansi oft að halda niðri í mér hlátrinum. Fyndinn endir á frábærri helgi.
