föstudagur, desember 30, 2005

Áramótaheit?

Í ár er planið að strengja eitthvað gott og helst óvenjulegt áramótaheit.
Ekki er ætlunin að það heit innihaldi orð eins og megrun, kíló, útlit eða hreyfing, þar sem ég hugsa bara um það einn dag í einu og það hentar mér vel.

Frekar væri gott að strengja heit eins og að:

  • hlusta betur á fólk
  • vera góð og hjálpleg manneskja
  • gefa X kr í góðgerðarstarfsemi
  • ferðast með krúttinu mínu
  • læra að lesa ársreikninga
  • læra svolítið í spænsku
  • læra meira jóga
hmmmm... hvað skal segja? asnaleg markmið? erfitt að standa við?
Ætla að hugsa þetta aðeins betur.

Hvaða áramótaheit ætlið þið að strengja í ár? ... ef einhver.

miðvikudagur, desember 28, 2005

Gleðilega hátíð

Ég er búin að hafa það alveg YNDISLEGT um jólin.
Fékk alveg fullt af flottum gjöfum, takk fyrir mig ... og er að fíla það í tætlur að hann Logi minn sé alveg að fatta hvað ég er mikið jólabarn. Var svoleiðis ofdekruð að hálfa væri nóg, var plötuð tvisvar af Rassálfinum ;) hehe.

Svo kom Rósa vinkona og John (kærastinn hennar) í mat til okkar í gærkvöldi, ferlega næs að sjá þau. Kjöftuðum og fórum í bíltúr og svona, voða huggó.

Stefnan er svo tekin á að sjá leikritið "Ég er mín eigin kona" á fimmtudaginn með nánast öllum kópóvinkonunum - tvær af þeim komnar í jólafrí frá Noregi. Jeij!

Gott að fá þessar vinkonur sínar frá úglöndum um jólin :D

mánudagur, desember 19, 2005

Splíng!

Jólahreingerningin er búin - nú þarf bara að halda þessu við þar til á föstudaginn... jeij!
Það var ekkert smá gaman að taka til, miklu skemmtilegra að gera þetta tveir, í stað að gera þetta gaaaaaaaaaaalein .... og svo vorum við með jólalög og U2 tónleikadisk í græjunum svo að það skemmdi ekki fyrir.

Við fengum svo foreldra okkar í mat í gærkvöldi og það var eins og litlu jólin, hryggur á boðstólum og huggó kvöld.

Ég er sem sagt komin í rosa mikið jólaskap!
Jingle bells jingle bells ... jingle all the way :D

fimmtudagur, desember 15, 2005

Jólaskapið

Já jólaskapið lætur segja til sín þessa dagana. Og við sambýlingarnir (hehe fyndið orð) tókum okkur til og keyptum þetta fína jólaskraut í gærkvöldi í Blómavali. Fyrir valinu urðu þrjár ljósaskreytingar með mynd af jólatré, snjókarli og jólasleða og þetta er komið upp í þrjá glugga. Við erum sem sagt orðin samkeppnishæf í hverfinu og mjög jóló um að lítast þegar maður horfir á húsið á Langholtsveginum.

Það sem svo fylgir þessari sögu er að við keyptum forláta steikarfat í leiðinni í blómavali. Okkur leist svo vel á það þar sem við erum með á dagskránni að fá fólk í hrygg á sunnudagskvöldið. Fatið var ferkantað og stórt og gott og við svona hrikalega ánægð með kaupin.

Þegar heim var komið sáum við eftir því að hafa ekki keypt minni gerðina af svona steikarfati þar sem að þetta var bara allt of stórt í litla ofninn okkar. Við þutum aftur út í búð og skiptum fatinu í minna og töldum okkur vera örugg en smá sorry þar sem ekki eins stór hryggur fittar í það. En allt kom fyrir ekki.... það var líka of stórt!

Endar sennilega á að einhver fær þetta í jólagjöf frá okkur!!

mánudagur, desember 12, 2005

Fegurðardrottningin!

Ég var ekkert smá hissa þegar ég heyrði að Unnur Birna hefði orðið MISS WORLD 2005 á laugardaginn. Ég sat í bíl með Fanneyju frænku og við horfðum bara á hvora aðra og sögðum svo bara "Glææææææææætan.....!". Var þessi keppni enn í gangi??? Ég hélt að feministar þessa heims væru að ná að kæfa þessa keppni alveg með kodda!

OK .... Ísland er aftur orðið "best í heimi" og kominn tími til. Alltof langt síðan við unnum titil í sterkasta manninum eða fallegustu konunni. Núna getum við andað rólegar og sleppt okkur um jólin, farið í háfleygar umræður um hvað við séum nú frábær við Íslendingar.

Við Íslendingar erum ein ríkasta og hamingjusamasta þjóð heims, hér er fallegasta fólkið, sterkasta fólkið, mesta jafnréttið, mesta kaupæðið, mesta flugeldaeign á gamlárskvöldi, sterkasti gjaldeyririnn, samtengdasta viðskiptalífið (allir eiga alla), mesta spillingin, sniðugasti seðlabankastjórinn, mesta sjónvarpseign, mesta gosdrykkjan, hæsta fasteignaverðið og svona má lengi telja! Og svo má nú ekki gleyma að við erum á leiðinni að kaupa helminginn af fyrirtækjunum í Danmörku og Bretlandi.

Æj hvað það er nú gott að við höfum eitthvað til að gleðjast yfir.
Ég sjálf ... ætla bara að eiga gleðileg og kærleiksrík jól og hætta að spá í öllu þessu "frábæra".