Heiluræktarátak þjóðarinnar
Góðan daaaaaaaaag! Ég horði á Ísland í bítið áðan og enn á ný er landinn að fara í heilsuræktarátak. Það er svo sem gott og blessað og ég er alveg fylgjandi því að fólk hreyfi sig...... eeen... margir hrista höfuðið þegar sagt er: "BARA hreyfa sig meira og borða minna og setja sér langtíma markmið". Já sko fyrir mig og marga aðra er þetta alveg ÓGEÐSLEGA erfitt. Fyrir þá sem eru með fíkn í mat gilda ekki alveg sömu reglur og hjá venjulegu fólki (og believe me .. það eru margir með fíkn í mat). Ef maður er með einhverja fíkn þá er maður með andlegt vandamál og aukakílóin eru bara afleiðing þessa andlega vandamáls. Fyrir þá sem telja sig vera með fíkn í mat er OA málið! ...... þar fékk ég lausn á mínu kílóaproblemi ....bara svona til fróðleiks ;)
gaggalill
um allt og ekkert
mánudagur, september 22, 2003
fimmtudagur, september 18, 2003
Líkamsrækt
Ég fór aftur í jóga í dag og mér fannst slangan bara ekkert svo auðveld sko! En hundurinn var OK. Gaman að þessu... fínt að geta farið í hin ýmsu hlutverk svona snemma á morgnana.
Nú á ég bara eitt dagsverk eftir og það er að mala vinkonu mína í badmintoni! Svo skulum við bara sjá hvort ég þurfi að éta hattinn minn á morgun :)
miðvikudagur, september 17, 2003
Hvað er sérstakt við daginn í dag?
Ég held ég verði að kíkja í moggann bara .... dagurinn í dag er mjög sérstakur alveg! Í dag kom fyrsta síldin til Hafnar. Júbbíjej!!! Á forsíðu Moggans er stúlka sem heldur á "fallegri" síld. Mikið er þetta nú ánægjulegt. Nú kætast allir í Hornafirðinum ... og nóg að gera og svona.
Í dag hvetur Saddam til hertra árása á bandaríska hermenn. Ekki alveg eins góð frétt... hmmm....*syngj* All we are saying, give peace a chance! *syngj*
þriðjudagur, september 16, 2003
Busy lady
Jahérna! ég hef bara ekkert skrifað hérna! Hvað á þetta að þýða? Ég var minnt á þetta og nú er eins gott að standa sig. En alla vega .... í dag er viðburðarríkur dagur, ég fór nefnilega í minn fyrsta jógatíma í morgun kl. 7 og naut hans fram í fingurgóma (í bókstaflegri merkingu). Það eru nú ekki margir dagar sem ég get verið fjall, fiskur og stríðsmaður og komist bara alveg ágætlega upp með það!!! Gaman gaman.

