Jafnrétti
Í dag er 19. júní og þess vegna ætla ég að hafa bleikan bakgrunn til hátíðabrigða.
Ég hef tekið eftir því að orðið feminismi fer mun verr í fólk en jafnrétti, af hverju ætli það sé? Af hverju sér fólk (bæði konur og karlar) alltaf fyrir sér feminíska manneskju sem groddaralega, órakaða, stuttklippta og grimma konu sem klæðist ekki brjóstahaldara? Fyrir mér er stuðningur við feminisma einnig að stuðningur við jafnrétti og hver vill ekki jafnrétti? Hver vill ekki bæta stöðu kvenna á vinnumarkaði, útrýma kynbundum launamun og auka hlut kvenna í stjórnun auðlinda og fjármagns? Hvað er fólk eiginlega hrætt við? Já ég bara spyr! :o)
gaggalill
um allt og ekkert

<< Home