miðvikudagur, júlí 09, 2003

Sólflugnadót

Nú þarf að fara að huga að blessuðum sólflugunum. Ekki vegna þess að það er svo mikil sól úti akkúrat núna, heldur af því að það er best að vera öllu reiðubúinn áður en maður fer til Rimini. Ýmsar hugmyndir eru uppi um hvernig maður losnar við að flugur stingi sig. Það er til dót til að stinga í samband í íbúðinni sem fælir flugur frá, svo er hægt að nota b-vítamín til inntöku og dreifingar um allt gólf. Nú svo er hægt að kaupa sér sprey til að spreyja á sig og þá stinga þessar elskur mann víst ekki, enda ekki furða því þá er svo vond lykt af manni. Sumir segja að maður eigi hreinlega að sleppa notkun allra ilmefna til að sleppa við stungur en mér finnst sú hugmynd ekkert sérstaklega góð. Mig langar alla vega ekki að lykta eins og jói á netabolnum í útlöndum. En svo gæti verið nauðsynlegt að eiga eitthvað til að bera á stungusár til þess að minnka kláða, ef ske kynni að maður yrði óheppinn. Úff mér sýnist að ég þurfi að fara með Hagkaupskerru í apótekið ........ annað hvort það eða sleppa því að vera paronoid.
20 dagar til brottfarar.