þriðjudagur, september 16, 2003

Busy lady

Jahérna! ég hef bara ekkert skrifað hérna! Hvað á þetta að þýða? Ég var minnt á þetta og nú er eins gott að standa sig. En alla vega .... í dag er viðburðarríkur dagur, ég fór nefnilega í minn fyrsta jógatíma í morgun kl. 7 og naut hans fram í fingurgóma (í bókstaflegri merkingu). Það eru nú ekki margir dagar sem ég get verið fjall, fiskur og stríðsmaður og komist bara alveg ágætlega upp með það!!! Gaman gaman.