mánudagur, september 22, 2003

Heiluræktarátak þjóðarinnar

Góðan daaaaaaaaag! Ég horði á Ísland í bítið áðan og enn á ný er landinn að fara í heilsuræktarátak. Það er svo sem gott og blessað og ég er alveg fylgjandi því að fólk hreyfi sig...... eeen... margir hrista höfuðið þegar sagt er: "BARA hreyfa sig meira og borða minna og setja sér langtíma markmið". Já sko fyrir mig og marga aðra er þetta alveg ÓGEÐSLEGA erfitt. Fyrir þá sem eru með fíkn í mat gilda ekki alveg sömu reglur og hjá venjulegu fólki (og believe me .. það eru margir með fíkn í mat). Ef maður er með einhverja fíkn þá er maður með andlegt vandamál og aukakílóin eru bara afleiðing þessa andlega vandamáls. Fyrir þá sem telja sig vera með fíkn í mat er OA málið! ...... þar fékk ég lausn á mínu kílóaproblemi ....bara svona til fróðleiks ;)