þriðjudagur, mars 30, 2004

Var að lesa fréttir

Það er nú bara ýmislegt fréttnæmt, t.d. eins og það að íslenska þjóðin virðist ekki alveg vera að fíla nýja Eurovision lagið. Skil nú ekkert í því - voða fín ballaða sko :)

Svo var ég að lesa einhvers staðar á netinu áðan að Penelope Cruz virðist hafa farið beint úr örmum Tom Cruise í arma Matthew McConaughey. Sumir eru heppnari en aðrir .. say no more!

Þetta voru nú aldeilis hressandi fréttir svona í morgunsárið.... eigið góðan dag.