and action!
Voðalega busyheit eru þetta, maður er bara alveg að gleyma sér í blogginu!
Mín vaknaði dúndurfersk í morgun, spratt á fætur, skellti í mig hafragrautnum og keyrði af stað upp á höfða til að spila skvass. Andstæðingurinn vann 2 leiki og ég bara 1 buhuuu. Djö... skal ég rústa henni næst. Gleymdi sokkum fór sokkalaus ofan í skóna sem var ekki girnilegt, brunaði heim í sokka og svo beint í vinnuna .... varð á að líta í spegil ... RAUÐHAUS! er rétt að fá bleikan lit núna.
Svo er spenna í kvöld..... bacheolor þáttur... ætli það sé ekki bara sá síðasti. Ætli ég grenji yfir þessu í kvöld. Guvuð ég vona ekki. Vil ekki vera svona! hehe
gaggalill
um allt og ekkert

<< Home