Footloose
Það eru allir komnir í stemningu í vinnunni í dag því hér er "hreingerningardagur" og þá finnst öllum tilheyra að fara í búning! Deildin mín er með alveg rosa fínt eighties þema, allt mjög ýkt og skemmtilegt.
Til þess að undirbúa þetta fór ég með Önnu í Rauða Kross búðina til að sjá hvort að ég fengi einhver fín föt fyrir tilefnið. Keypti reyndar ekki neitt þar, en fékk mjög flott hláturskast. Við mátuðum frábæra Eríks Hauks kápu nefnilega .. það var ekki leiðinlegt .... hægt er að sjá mynd af Önnu í flíkinni á nýja mblogginu ;)
Svo er bara að skella Footloose í tækið og gera allt vitlaust! ... haldið þið að það verði ekki fjör?
gaggalill
um allt og ekkert

<< Home