Helgi!!!!
Hafið þið ekki þekkt einhvern Helga og sagt við hann: "Góða helgi Helgi!" ... ég þekki nokkra og þeir hata allir (margir alla vega) þegar þetta er sagt. Kannski hafa þeir heyrt þetta einum of oft á ævi sinni. Aaaaaaaaaaðeins of margir gallar á einum osti!
Annars er ég bara kát, er að ljúka vinnudeginum og ætla að skella mér í sund og svo í bíó í kvöld einhvern tíma á "Touching the Void" ... vona að mínar litlu sætu taugar þoli þá mynd. Hún er víst þrusugóð og sannsöguleg og ógnvænleg og rosaleg og raunveruleg og geðveik og eitthvað meira en ég held ég hætti hér með lýsingarorðin.
Mér var bent á að það hefðu ekki verið nógu margir valmöguleikar í "Er guð kona?"-spurningunni minni. Sumir myndu nefnilega segja að guð væri kærleikur... hmm eitthvað til að pæla í.
gaggalill
um allt og ekkert

<< Home