Hjólabeib, hressleiki og risatré
Hæ hó alle sammen ... ég var að kaupa mér hjól ligga ligga lái. Er ekkert smá fersk og hlakka ekkert smá að fara að þeysa um á græjunni. Einhvern veginn kom þessi hugmynd í hausinn á mér um páskana ... svo sterk hugsun að ég bara framkvæmdi þetta! Hvort eð er búin að hugsa um þetta í heilt ár.
Svo var ég vakin af iðnaðarmanni tvo morgna í röð... ekki vegna þess að ég er gengin út ... heldur vegna þess að hann ætlar að vera svo vinalegur að höggva niður nokkur RISATRÉ í garðinum heima hjá mér. Sá er annars voða ferskur á morgnanna .. alveg: "Góðan og blessaðan daginn og velkomin á fætur" ... þarf að ná mér í svona ferskan mann by the way.
En það fyndna er að þetta skógarhögg er búið að standa til lengi, í rúmlega ár, og loksins er komið að því í dag. EN pælið í því í gærkvöldi dingluðu nágrannar mínir í næsta húsi heima hjá mér og spurðu mjög vandræðalega: " EHEMM hurrðu .. eruð þið ekkert að spá í að höggva þessi tré þarna í garðinum hjá ykkur???" ... ég gat nú aldeilis glatt þau með því að þetta væri nú bara allt að gerast! ... Stundum leysast hlutirnir bara 1-2-og-3 ... RAGGA REDDARI mætt á svæðið.
"NO TREES FOR YOU MY FRIENDS"
Eru ekki annars allir hressir? .... Mig langar alveg svakalega mikið að fá komment frá ykkur svona svo ég viti að einhver sé að lesa!!! :)
gaggalill
um allt og ekkert

<< Home