Pælingar dagsins
Ferlega er maður vanafastur. Þrátt fyrir að vilja að trén færu þá er þetta ferlega skrýtið! Samt jákvætt skrýtið! Það er t.d. bjartara í stofunni hjá mér og svona. Eeeeen það er eitt risatré eftir sem nágrönnum mínum í næstu húsum langar að losna við. Ég tók mig því til og fór að spjalla við þá nágranna mína í húsinu sem voru heima og gerði litla skoðanakönnun á hvort við ættum að fella síðasta tréð. Flestum virðist vera sama. Ljóst er að fólk er ekki að tengjast neinum sérstökum tilfinningaböndum við 15-20 metra tré.
Ég hjólaði góðan rúnt í gær á nýja frábæra hjólinu mínu. Komst að því að hnakkurinn er kannski eilítið harður, en samt sem áður algjör unun að hjóla á græjunni. Rassinn er reyndar smá aumur í dag en hann er hvort eð er ekki nýttur í neitt nema að sitja á honum þannig að það er ekki stór skaði skeður. Ég held ég láti það eftir mér að kaupa svona geldót til að setja á hnakkinn.
Ég er komin með nýtt mblogg því að ég skipti um símanúmer - sjá nánar á linknum hérna hægra megin. Þarna eru komnar myndir úr bústaðnum og væntanlegar eru myndir af hjólinu fræga og kannski myndir af garðinum án trjáa :P
Könnunin um hvort að fólk fíli eighties fötin er lokið. Einum þátttakanda finnst þau kúl en fimm fannst það ekki. En við erum örugglega öll búin að fá ógeð af þessari könnun þannig að ég sett nýja :)
gaggalill
um allt og ekkert

<< Home