Páskar og kynþokki
Hæ hó ... ég er komin í páskafílinginn. Mig langar eiginlega í frí núna en hugga þó sjálfa mig við það að ég þarf þó bara að vinna þennan dag og svo er ég komin FRÍ.
Fór á Súfistann í gær og las slatta af sorpritum eins og Cosmopolitan og Hello, náði alveg að pirra mig yfir því hvað allt í þessum blöðum snýst um það að vera mjór og fallegur.
En þó var EIN grein sem var með mynd af konu í venjulegri stærð (stærð 14). Þessi grein fjallaði um könnun sem gekk út á það sýna mynd af konunni í nærfötum og í texta á myndinni stóð "I think I'm sexy, do you?". Svo var svaraði slatti af fólki þessari spurningu og niðurstaðan var sú að 66% af þeim sem svöruðu sögðu "YES".
EN það sem athygli mína vakti var að það var gerð önnur sambærileg könnun með sömu mynd en öðrum texta: "I think I'm fat, do you?". Niðurstaðan við þessu var að 55% sagði "YES".
Ég tek það fram að þetta var AMMMERÍSK könnun en þetta segir manni samt það að sjálfsöryggi er sexy...... Ekki satt?
gaggalill
um allt og ekkert

<< Home