Róleg helgi
Mikið átti ég nú fína helgi, bara róleg og afslöppuð! Ekkert puð, enda var það alveg tekið út þarna á miðvikudaginn í síðustu viku.
Big news in the dating world of famous people ... Kornikova og Enrique ætla í hnapphelduna! .. og ég sem hélt að þau væru hætt saman. En mogginn lýgur ekki.
Svo er Björk að fara að gefa út disk þar sem ekki er spilað á nein hljóðfæri. Allir taktar og allt svoleiðis er gert með röddum Bjarkar og vina hennar... oh ég vildi að ?g hefði vitað þetta! Þá hefði ég hringt í hana og spurt hana hvort ég mætti vera "Dú Dú Dú dei dei dei" hljóðið.
gaggalill
um allt og ekkert

<< Home