þriðjudagur, apríl 20, 2004

Skómarkaður, sprengur og ófrjósemi

Fór í skómarkað í gær og ótrúlegt en satt fann ég bara ENGA skó sem mig langaði í. Undur og stórmerki alveg!

Allir í vinnunni eru að tala um sprengjur í dag og fótboltaáhugamennirnir hér eru komnir með áhyggjur af einhverjum leik milli Liverpool og Manchester því að fréttir segja að það muni einhverjir gæjar vera á leiknum sem ætla að sprengja sig í loft upp!!! Ég þoli ekki trúarofstæki ... og þá vitið þið það.

Var að lesa Moggann .. þar stendur að einhver kínverskur læknir telur að of mikið kynlíf valdi ófrjósemi. Hahahaha brill skondið! .... Ég hlýt að vera alveg sérstaklega frjó manneskja. Og nóg um það.