mánudagur, maí 24, 2004

10 ára Reunion

Það var vægast sagt fyndið að hitta gömlu bekkjarfélagana eftir 10 ár. Sumir voru jafn kokkí, aðrir jafn feimnir, enn aðrir aðeins feitari eða grennri. En í heildina voru bara allir sætir og hópuðust í sömu hópana og við vorum vön í gamla daga. Það voru tekin sömu lögin, atvik úr útskriftarferðinni voru rifjuð upp og hlegið og dansað.

Stundum er eins og tíminn standi í stað!