föstudagur, maí 14, 2004

Danskt brúðkaup

Það er ótrúlegt hvað Danir eru búnir að vera að pæla í þessu konunglega brúðkaupi. Þegar ég var úti þá voru rauð hjörtu bókstaflega út um allt, það var heldur ekki talað um neitt annað í sjónvarpinu. Ætli maður verði ekki bara að kíkja á sjónvarpið í hádeginu.

Þetta er allt voða rómantískt. Verðandi prinsessa er nefnilega svo ferlega sæt og góð, búin að læra mjög góða dönsku, á alveg yndislega fjölskyldu og er voða huggó í alla staði. En það voru vissar áhyggjuraddir í vinum prinsessunnar þar sem að hún missti mömmu sína fyrir nokkrum árum og líklegt er að elsku litla krúttið felli tár í athöfninni þar sem erfitt er að hafa mömmuna ekki til staðar á svona stóru mómenti.

En svo mitt í öllum þessum brúðkaupspælingum Dananna gerist það sem ENGINN bjóst við.... Danir duttu út úr Eurovision, íslenskættaði homminn komst ekki í gegn og allir í sjokki..... og honum var spáð sigri og allt. Svona gerast slysin!

Ég held ég sé bara að komast í Eurovisionstuð!