Að fá lag á heilann
Nú fer að styttast í að ég fari á 10 ára stúdentsjubileum og ég er komin með hausinn smá aftur í fortíð. T.d. var ég að muna núna rétt í þessu að ég fékk mjög reglulega lag sem byrjar svona "Þetta er lítið lag um fiðrildi og flugur .... " þegar ég var í menntó. Það var nefnilega einn gaur í bekknum mínum sem byrjaði alltaf að syngja þetta lag og þá fengu mjög margir í kring þetta á heilann.
Af hverju fær maður alltaf lög á heilann sem maður þolir í raun ekki?
Ég er nýbúin að sjá alveg hræðilegar myndir af sjálfri mér síðan á þessum menntaskólatíma.. jedúddamía .. þetta verður eitthvað blast from the past. En pottþétt hrikalega gaman!
gaggalill
um allt og ekkert

<< Home