þriðjudagur, maí 18, 2004

Hjóladagur í dag

Hæ ... ég er voða stollt af sjálfri mér, ég afrekaði nefnilega að hjóla í vinnuna og tók það alveg heilar 7 mínútur. Ekkert mál og með tölvuna á bakinu! ... bara heilmikið frískandi.

Hefur einhver sem þið þekkið ruglast á uppvöskunarvél og klósetti? Kathrine vinkona mín í Danmörku varð nefnilega fyrir því mikla óláni um daginn að fá fullan næturgest sem rataði ekki á klósettið og "bakaði köku" í uppvöskunarvélina!!!! FREKAR mikill VIÐBJÓÐUR ... hefðuð þið áhuga á að þvo diskana ykkar upp úr þeirri uppvöskunarvél? Ekki ég, svo er víst.