mánudagur, maí 03, 2004

Sjálfselska

Þetta var fín helgi. Róleg og góð. Ég, um mig, frá mér, til mín!

Þvottur var þvegin, tekið til í íbúðinni, farið á kaffihús með vinkonu minni, glápt á kassann og bara svona almennt hangið. Fékk svo tvær vinkonur mínar í mat í gærkvöldi í alveg ferlega góðan indverskan rétt (þó ég segi sjálf frá)... sem sagt kjúlli í karrý/mangó/kókos-sósu með banönum ofan á og svo meðððððí!

Myndin sem ég sá á föstudaginn var fín - Touching the void - þetta er að hálfgjöru leyti heimildarmynd og lýsir því alveg svakalega hvað klikkunin getur orðið rosaleg í hausnum á fólki sem er aleitt að reyna að bjarga lífi sínu upp á RISA fjalli. Annar gaurinn fékk t.d. hið hræðilega lag "brown girl in the ring" með Boney M á heilann!!! ... sem hann var reyndar ekki að fíla - en það bara FÓR ekki. Djö.... nú er ég komin með það á heilann.