Fjúff
Ég er búin að vera ekkert SMÁ dugleg um helgina. Dúllaði mér í garðinum, plantaði sumarblómum, þreif glugga, sópaði svalirnar og tröppurnar, þreif eldhúsið að mestu leyti, fór í sund, flokkaði flöskur til að fara með í endurvinnsluna og ALLT.
Svo er planið að fara í endurvinnsluna og kaupa mér stóla við borðstofuborðið mitt eftir vinnu. Það verður nú gaman :) .. verst að ég held maður fái ekkert svakalega mikið fyrir þessar blessuðu flöskur. En ég er þá alla vega umhverfisvæn í dag og því fylgir mikil vellíðan hehehe.
Og jeminn .. eruð þið búnar að sjá lilluna hennar Láru vinkonu - hversu sætur getur eitt barn eiginlega orðið!
gaggalill
um allt og ekkert

<< Home