mánudagur, júní 28, 2004

Pæling dagsins

Geysp! ... bara ein vika eftir í vinnu og ég hef grun um að ég verði hálf óvirk. Ætla þó að reyna að klára hitt og þetta áður en ég fer róleg í frí ;)

Er svekkt yfir því að geta ekki mbloggað frá Krít .. en þá verður bara stafræna myndavélin bara tekin með, hitt er bara meira "spontant"!

Er enn að spá og spekúlera í þessu Þórsmarkardæmi - gæti verið að þetta sé í síðasta sinn sem ferðin verður með þessu móti þar sem vinafólk mitt sem heldur þessu yfirleitt uppi er að fara að flytja til Noregs .. búhúúú. En hvað sem því líður þá ætla ég að kanna veðurspána og láta hana ráða! ;)