Sjúk
Hæ ... ég heiti Ragnheiður og ég er sjúk. Fór á vigt í morgun og stóð í stað, fannst það klikkað af því að mér fannst einhvern veginn ég hafa grennst síðan fyrir mánuði. Fór þá að pæla af hverju þetta gæti verið og fór að kenna sundbolnum mínum um. Já ég var í sundi og sundbolurinn var blautur, svo er hann nýr líka og úr svona þungu efni sem dregur svaka mikið vatn í sig .... örugglega 1 kg eða eikkva!... er viss um að það sé honum að kenna! ER SVO SJÚK!
Já gamla góða útlitsþráhyggjan er að trufla mig þessa dagana, enda er ég búin að vera óvenju mikið í mátunarklefum í kringlunni og smáró og það virkar alltaf rosa óflatterandi fyrir mann ... af hverju var ég að máta öll þessi "sumarföt" .. ég á nóg af þessu dóti ... SEM PASSAR! En jæja verndarenglarnir mínir hljóta að hjálpa mér í dag og fljúga örugglega fljótlega burt með allar þessar neikvæðu hugmyndir um sjálfa mig.
gaggalill
um allt og ekkert

<< Home