Skvass
Ég er búin að vera að spila skvass með vinkonu minni úr vinnunni, alveg rosalega gaman nema hún hefur alltaf verið aðeins betri en ég!
Það verður að viðurkennast að það hefur verið mikið bögg. Svo gerðist það hún slasaði sig á kálfanum á mánudaginn í miðjum skvass tíma akkúrat þegar ég var að vinna!!!
En hún lét sig hafa það að mæta í dag til að liðka kálfann og svona og það fór 2-2 .. hmmm jafntefli og hún hálf slösuð. Djö.. skal ég rústa henni næst, það verður sko EKKERT tekið tillit til meiðsla :Þ
Svo er bara 17. júní á morgun og ég ekki með nein plön nema sleikja sólina.
gaggalill
um allt og ekkert

<< Home