Afmæli og eyjar
Ég átti líka þetta fína afmæli á þriðjudaginn, ógisslega gaman, einn af skemmtilegri afmælisdögum sem ég hef átt. Frábært alveg og svo er ég orðin 30 år gammel sem þýðir að núna á ég að vera orðin þroskuð KONA.
En til að sýna þroska minn ætla ég að fara til Eyja um helgina og í stað þess að gista í tjaldi mun ég verða í heimagistingu á Hótel Björk. (Björk er sem sagt vinkona mín sem hefur tekið hlutverki sínu mjög alvarlega þannig að ég sé fram á svaka flotta dvöl). En þar sem útlitið er ekki gott svona veðurlega séð þá er ég að spá í að skella mér í stígvélabúð og kaupa mér eins og eitt par af svona old fashion gúmmítúttum... skv. leiðbeiningum Bjarkar sem er vön þjóðhátíðarskemmtari.
gaggalill
um allt og ekkert

<< Home