Frábært!
Þjóðhátíð í Eyjum var alveg brill.... Ego var baaaaaara kúl og hinar hljómsveitirnar stóðu sig með prýði (skipti mér þó lítið af Mínus enda nóg annað um að velja).
Var mjög þakklát fyrir að fá gistingu í heimahúsi, algjör lúxus að komast í almennilega sturtu og undir góða sæng. Þetta var bara næstum eins og að fara helgarferð til útlanda með góðu djammi.
Varð svo veðurteppt í gærkvöldi í nokkra tíma og þegar við vorum að kanna stöðuna og tékka okkur inn á flugvellinum, bað örvæntingarfullur faðir okkur um það hvort við værum til í að sitja við hliðina á 8 ára dóttur sinni til þess að hún fengi "sessunaut með fulle fem". Það var ekkert nema sjálfsagt og undirrituð tók að sér sessunautshlutverkið. Þegar í vélina var komið byrjaði stelpan að spjalla og spjallið varði allt flugið (30 mín).
Pældu í því 30 mín nonstop!!! En það var ekki eins og hún væri eitthvað leiðinleg blessað barnið, hún sagði mér allt milli himins og jarðar, ég er t.d. fróðari um skóstærð stjúpmóður hennar, að mamma hennar hafi verið í námi á bifröst og sé að leita sér að kærasta, að hún sjálf hafi náð sér í símahúfu úr ruslinu á bekkjabíl af því að henni fannst hún svo flott og að ef maður sigldi of langt mundi maður sigla fram af jörðunni!
Hún kom líka með nokkrar gáfulegar spurningar eins og: Af hverju kemst flugvélin svona hratt?Af hverju notar maður gleraugu? Áttu mann? Vinnur þú hjá Símanum? Ertu í Símabúðinni? Varstu að vinna á þjóðhátíðinni? ...... sem gefur að skilja þurfti ég ansi oft að halda niðri í mér hlátrinum. Fyndinn endir á frábærri helgi.
gaggalill
um allt og ekkert

<< Home