fimmtudagur, ágúst 12, 2004

jesoaldeilishissa!

Eins og flestir Íslendingar er ég voða hissa yfir þessu bliðskaparveðri. Það verður að viðurkennast að ég er ekkert spes starfsmaður á meðan þessu stendur en ég mæti og þó og reyni mitt besta .... þar til að ég gefst upp (eins og í gær kl. 15:30) og sest upp í bíl og keyri þar til að ég er komin upp í Skorradal til foreldrana sem eru orðin svo kolsvört að sú staðreynd að ég hafi fengið ógisssslega mikinn lit á Krít hefur bara EKKERT að segja í samanburði við þau. Lét eins og ekkert væri og fór bara í pottinn og montaði mig yfir því að ég væri brúnari en þau á bakinu (eini staðurinn sem ég gat fundið). Smá pathetic ... en gerir ekkert til!

Hitametið í Rvk var slegið í gær: 24,8 gráður celsíus á opinberum mælum Veðurstofu Íslands, var þó heitara víðsvegar um landið. EN ég er komin aftur í vinnuna, 20 gráður á mælinum þegar ég vaknaði kl. 7 ..... Æ KAN DÓ IT! ... koma svo!