Boston/NY - eftir viku!
Jæja það er kominn spenningur í mína. Er svolítið mikið að pæla í hvað hægt sé að gera sér til dundurs í Boston og NY. Ég reikna nú með að þetta verði frekar auðvelt í Boston þar sem Rósa vinkona er örugglega mjög hæfur guide!
En varðandi NY þá er ég komin með ferða/vinnufélaga til að eyða tíma mínum með þar, og ekki af verri endanum, Slaug heitir hún og hefur ferðast með mér áður.... við erum farnar að kunna þetta!
Verðum á ágætis hóteli við Times Square þannig að það er stutt í búðirnar ... auðvelt að kíkja í smá labbitúr í hádegismat og svona :D
Planið er svo að vera "rich bitch in foreign countries" á kvöldin og fara flott út að borða. Veit einhver um veitingastað á Manhattan sem maður gjörsamlega VERÐUR að fara á?
gaggalill
um allt og ekkert

<< Home