Prinsinn
Ég er byrjuð á námskeiðinum (PRINCE2 - Projects In Controlled Environment) og það gengur alveg fínt. Kennarin er stórsniðugur og ég var meira og minna brosandi í allan dag, ótrúlegt hvað einn maður getur gert frekar þurrt málefni mjög spennandi. Var þarna frá kl. 9 til 17:15 og leit ALDREI á klukkuna.
En það er samt kominn smá prófskrekkur í mig því að hann var að vara okkur við að þetta væri nú erfitt og við yrðum að læra heima í ca. 2,5-3 tíma á kvöldin! LÆRA HEIMA!!!???!!! jeminn tjeminn.... eins gott að standa sig!
gaggalill
um allt og ekkert

<< Home