Sumar vikur eru vangefnari en aðrar
Hæ hó .. ég er komin frá Boston og NY fyrir löngu, ógeðslega gaman, mikið keypt og frábært að hitta hana Rósu mína.
Ýmislegt er svo búið að gerast síðan úti. Yfirmaður minn í vinnunni sagði upp, starfi mínu var breytt, gaurinn sem ég var hrifin af sagði mér að eiga mig og brjálað að gera í vinnunni.
Um helgina er ég svo að fara að læra fyrir próf sem ég fer í næsta föstudag - verð á námskeiði alla næstu viku og þarf samt að vinna vinnuna mína ... sem sagt brill vika framundan! En ég hlýt að meika þetta einn dag í einu :)
gaggalill
um allt og ekkert

<< Home